Skreytingasamkeppni

Starfsmenn Mogga keppast viđ ađ skreyta básana sína, enda á ađ verđlauna ţá sem standa sig best. Jólalegasti, frumlegasti og fyndnasti básinn fá verđlaun. Ég vćri til í ađ fá verđlaun fyrir ţann jólalegasta, ţví ţá fć ég úttekt í Krónunni. Eđa ţann fyndnasta, ţví ţá fć ég kaffi og ostakörfu. Ég get hins vegar ekki hugsađ mér ađ fá verđlaun fyrir frumlegasta básinn: Heitsteinanudd! Hvernig dettur fólki svona vitleysa í hug? Eins og flest venjulegt fólk sé til í ađ leggjast nakiđ á bekk og láta einhvern rađa heitum steinum á sig? Tíđkađist ţetta ekki á tímum rannsóknarréttarins?
Reyndar fékk ég einhvern tímann gjafakort í heitsteinanudd, en er löngu búin ađ gleyma hvernig ţađ atvikađist. Mér datt ekki í hug ađ fara frivilligt í slíkar pyndingar. Kata fór og lét eins og ţetta hefđi veriđ alveg ćgilega notalegt. En hún er nú eins og hún er. Fer í leikfimi og svoleiđis.
Annađ er afskaplega undarlegt viđ skreytingasamkeppnina miklu á Mogganum. Annar ađstođarritstjórinn er formađur dómnefndar. Sá er frćgastur fyrir ađ vilja helst aldrei taka til í básnum sínum. Blađabunkarnir á borđi hans ná upp í loft og honum finnst ţađ bara fínt. Ţessi mađur á ađ dćma bása annarra. Ég er ađ hugsa um ađ skreyta minn bás í svörtu og hvítu, ţví ţessi ađstođarritstjóri er KR-ingur. Nei annars, ţá fengi ég kannski verđlaunin fyrir frumlegasta básinn...


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Hver er summan af einum og fjórum?
Nota HTML-ham

Um bloggiđ

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 786277

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband