Auðkennislykillinn

Einu sinni var netaðgangur að bankanum mínum hið besta mál. Ég gat farið inn á bankann í vinnunni eða heima, kannað stöðuna, millfært og borgað reikninga. Mig minnir að bankarnir hafi endalaust básúnað frelsið sem fólst í netaðgangi. Alla vega var ég ákaflega sátt við þetta.

Núna hafa bankarnir ákveðið að auka öryggið, að eigin sögn. Mér sýnist að vísu að þeir séu fyrst og fremst að frýja sig ábyrgð á þjófnuðum úr netbönkum með þessum andsk.... auðkennislykli.

Ég og frúin höfum verið með sameiginlegan aðgang inn á netbankann og þar undir lúra allir okkar reikningar og kröfur. Hún fékk auðkennislykil sendan, kannski af því að hún er á undan mér í stafrófinu. Þessi eini lykill á að veita okkur báðum aðgang að netbankanum. En hann veitir mér nú engan aðgang ef hann liggur heima, eða ef hún ákveður að taka hann með sér í vinnu.

Núna kemst ég ekki lengur inn á bankann í vinnunni. Nema ef ég tek auðkennislykilinn með mér, en þá er frúin aðgangslaus.

Þjónusta? Það var þá!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svo er maður neyddur til að hafa þennan fjanda með þér hvert sem er og þetta er ekki skemmtilegasta lyklakippa sem ég hef átt..!

Leifur Örn Gunnarsson (IP-tala skráð) 14.2.2007 kl. 16:15

2 Smámynd: Guðmundur H. Bragason

Það er víst líka hægt að fá númer sent í sms í simann sinn en held að það skeyti kosti mann 6kr!!!

Guðmundur H. Bragason, 15.2.2007 kl. 00:58

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hvernig stendur á því að við látum þessi ósköp yfir okkur ganga? Sjálf er ég ekki barnanna best, þegar búin að játa mig sigraða og leita lausna hjá bankanum. Lausnin er sú að búa til annan heimabanka, sem verður eins konar afrit af hinum og þar með fæ ég líka stóra, ljóta lyklakippu. Úff!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 15.2.2007 kl. 10:00

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Leifur, fyrst þú ert nú hérna! Skoðar þú ekki póstinn þinn eða viltu bara ekki gefa mér uppskriftina góðu??? Manni getur nú sárnað...

Ragnhildur Sverrisdóttir, 15.2.2007 kl. 10:02

5 identicon

HALLÓ... hvaða uppskrift... ég vil fá hana líka!! Kv. Olla.

Ólöf Marín Úlfarsdóttir (IP-tala skráð) 15.2.2007 kl. 13:00

6 identicon

Eftirrétturinn góði sem Leifur gaf okkur síðast, manstu þessi flotti, með mascarpone osti og alls konar berjum. Annars, Olla, þá ertu nú pínulítið skrítin að heimta uppskrift án þess að vita nokkuð um hvað við erum að tala :) Hahahaha

ragnhildur (IP-tala skráð) 15.2.2007 kl. 13:51

7 identicon

Uppskriftin verður send á allan hópinn í kvöld!

(og by the way Ragnhildur þá var ég búinn að svara póstinum þínum. Þú nefnilega nefndir aldrei í póstinum þínum hvaða eftirrétt var um að ræða! Ég vil nú minna þig á að ég hef í það minnsta borið fram þrjá mismunandi eftirrétti í okkar matarboðum!) 

Leifur Örn Gunnarsson (IP-tala skráð) 15.2.2007 kl. 16:56

8 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Leifur, ég mælist til þess að þú sendir bara allar uppskriftirnar, enda var þetta hvert öðru betra ;)

Ragnhildur Sverrisdóttir, 16.2.2007 kl. 09:16

9 Smámynd: Bergþóra Jónsdóttir

halló, halló, má ekki þessi uppskrifafíkill hér fá líka?   ligg heima í flensu og hef ekkert betra að gera þegar ég er búin með hittið sem bara ranka veit  um...   

Bergþóra Jónsdóttir, 20.2.2007 kl. 16:10

10 Smámynd: Bergþóra Jónsdóttir

...ekkert betra en að lesa uppskriftir...þ.e.a.s.

Bergþóra Jónsdóttir, 20.2.2007 kl. 16:13

11 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Takk fyrir að minna mig á þetta uppskriftarmál, sem verður æ dularfyllra. Leifur var með yfirlýsingar um að hann ætlaði að senda þetta um allar trissur á fimmtudag í síðustu viku! Ég mun ganga hart eftir þessu. Og gangi þér vel með hittið ;)

Ragnhildur Sverrisdóttir, 20.2.2007 kl. 16:20

12 identicon

ó.. já... uppskriftir og nammigott...

Heyrið Gourmet.. er ekki farið að viðra fyrir matarboð... sp. um að ég taki slíkt að mér næst og Ragnhildur byrjar að slurka í sig OÐ-næmispillunum.???

Sárlega farin að langa í góðan mat og örlitla brjóstbirtu með því!

Kv. Magga

Magga (IP-tala skráð) 24.2.2007 kl. 16:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband