Oðnæmi, ekki ofnæmi

Margrét dóttir mín fór enn á ný að tala um dýraofnæmið mitt í gær. Nema hvað núna var hún aðeins búin að breyta til og kallaði þetta OÐ-næmi. Ég leiðrétti hana og hún kom alveg af fjöllum. "En ég ætla bara að kalla þetta OÐ-næmi," sagði hún. Mér fannst það ekki góð hugmynd og beitti þeim rökum að það væri beinlínis rangt að tala um OÐ-næmi. Hún skildi ekki rökin. Hélt ég væri bara að reyna að vera fyndin og hló mikið.

Hvernig fer með uppeldið þegar börnin taka ekki einu sinni mark á svona athugasemdum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Þegar dóttir mín greindist með ofnæmi fyrir túnfíflum hringdi hún til föður síns sem var í útlöndum og sagði honum að hún væri með ofnæmi fyrir fíflum. Þetta fannst okkur sætt......

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 16.2.2007 kl. 16:08

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

haha, ég er líka með ofnæmi fyrir fíflum

Ragnhildur Sverrisdóttir, 20.2.2007 kl. 12:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband