Haugar

Fyrrum fréttaritari Vísis og DV hælir sér af því að hann hafi stundum búið til heilu fréttirnar. Og farið létt með að vitna orðrétt í Steingrím Hermannsson, þótt hann hafi aldrei við hann talað.

Kannski finnst manninum þetta fyndið. Hann er líklega einn um það.

En þetta er ekki eina dæmið sem ég veit um svona vinnubrögð. Fyrir mörgum árum, þegar faðir minn var bankastjóri í Landsbankanum, hafði blaðamaður á ómerkilegu blaði spurnir af einhverjum kjaftasögum sem gengu innan bankans. Hann skrifaði þriggja dálka frétt um málið og hún birtist í blaðinu hans. Í fréttinni tjáði Sverrir bankastjóri sig um málið. Allt innan gæsalappa og leit virðulega út. Þessi frétt kom föður mínum hins vegar spánskt fyrir sjónir, enda hafði hann aldrei talað við blaðamanninn. Hann hafði samband við hann og spurði hverju þetta sætti. Blaðamaðurinn átti auðvitað engin svör, en reyndi að bera í bætifláka fyrir sig með því að væla eitthvað á þessa leið: Já, en Sverrir, ég náði ekki í þig!!

Það er vont að vera blaðamaður þegar svona haugar skreyta sig með starfsheitinu. Þessi er reyndar hættur fyrir nokkru.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Já það er alltaf jafn sorglegt þegar fullorðið fólk heldur að það geti borið sig í lýginni gegnum lífið eða bregður á slík örþrifaráð til að "standa sig".   Stundum þarf að skoða umhverfið einnig, þ.e. hvort stjórnendur og eigendur fyrirtækja beiti starfsmenn sína (í þessu tilviki blaðamaður) ofríki eða óeðlilegum þrýstingi.  Bestu kveðjur

Svanur Sigurbjörnsson, 20.2.2007 kl. 00:10

2 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

"borið sig á lyginni" á það að vera ;-)

Svanur Sigurbjörnsson, 20.2.2007 kl. 00:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband