Traust 29% þjóðarinnar (Viðhorf í Mbl. 10. mars)

Þessa dagana velta menn mjög fyrir sér hvernig á því standi að aðeins 29% landsmanna bera traust til Alþingis, eins og fram kom í Þjóðarpúlsi Gallup á dögunum. Ýmsar getgátur eru á lofti og eins og venjulega telja stjórnmálamenn sig þess helst umkomna að leggja mat á málið. Úr herbúðum stjórnarliða heyrist til dæmis að málþóf stjórnarandstöðunnar hafi grafið mjög undan virðingu löggjafarsamkomunnar. Stjórnarandstæðingar vísa þessu auðvitað á bug, en nefna sem hugsanlega skýringu að framkvæmdarvaldið hafi öll ráð þingsins í hendi sér og sú staðreynd rýri auðvitað traust almennings á þinginu. Og svo halda menn áfram að togast á um þetta og á meðan þverr virðingin enn.

 

Nú má vel vera að þeir sem urðu fyrir svörum þegar Gallup tók púlsinn hafi verið með hugann við málþóf eða meint framsal löggjafarvaldsins. Sjálf hefði ég haft fleiri, en kannski smærri, atriði í huga, sem samanlagt hefðu líklega neytt mig til að segja að ég hefði ekki mikið traust á löggjafarsamkomunni við Austurvöll.

Eitt af þessum smáatriðum skaut upp kollinum í síðustu viku. Þá var verið að ræða um fjárframlög til SÁÁ. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fór í pontu og sagði að ekki hefði verið gerður samningur milli ríkis og SÁÁ frá 2005 og það væri hann ósáttur við. Hann væri ósáttur við að greitt yrði fé úr ríkissjóði án þess að samningur lægi fyrir.

Svo hélt þingmaðurinn áfram og benti á að sami maðurinn væri "yfirlæknir, hann er formaður framkvæmdastjórnar, þ.e. stjórnarformaður hjá fyrirtækinu, þannig að hann uppfyllir öll þau skilyrði sem voru hjá Byrginu".

Pétur komst ekki öllu lengra, því aðrir þingmenn voru ekki seinir á sér að grípa stórkostlega yfirsjón hans á lofti, kalla fram í og krefjast þess að hann drægi ummæli sín strax til baka.

Ég minnist þess ekki að hafa nokkurn tímann tekið upp hanskann fyrir Pétur H. Blöndal, enda fara skoðanir okkar afskaplega sjaldan saman, ef nokkurn tímann. Þessi ummæli hans voru hins vegar rifin úr öllu samhengi og blásin út á svo yfirgengilegan hátt af andstæðingum hans, að ég get ekki orða bundist. Pétur hafði að þeirra mati borið yfirlækninn þungum sökum. Að nefna Byrgið var auðvitað eins og að nefna snöru í hengds manns húsi. "Það er ekki í lagi við þær aðstæður sem núna eru uppi að koma með samlíkingu sem tengist atburðum af því tagi sem orðið hafa í Byrginu," sagði Steingrímur J. Sigfússon í ræðustól Alþingis.

Össur Skarphéðinsson bætti um betur: "Það samræmist ekki þingsköpum að menn geti komið hér í ræðustól og atað auri fjarstadda menn sem ekkert hafa til saka unnið nema að reyna að lækna þrautir meðborgara sinna."

Líklega hafa tárin blikað á hvörmum í þingsal þegar hér var komið sögu. Og áfram hélt Össur og sagði þetta ekki vera í fyrsta skipti sem Pétur hefði með ósæmilegum hætti ráðist að hópum fólks sem á um sárt að binda í samfélaginu, með ósæmilegum munnsöfnuði.

Ja hérna hér! Þarna var Pétur farinn að ráðast að heilu hópunum, sem eiga um sárt að binda! Ætli þeir Steingrímur og Össur hafi í fúlustu alvöru verið að taka til varna fyrir yfirlækni SÁÁ? Og kannski talið sig vera að gæta virðingar Alþingis í leiðinni? Það má auðvitað vel vera að þeir líti svo á, en þessi uppákoma var enn eitt smáatriðið sem rýrði traust mitt á þinginu og þeim sem þar starfa. Ummæli Péturs voru slitin úr öllu samhengi af því að andstæðingar hans voru eldfljótir að átta sig á að þarna gætu þeir snúið út úr og slegið sig til riddara í leiðinni.

Ég get upplýst þessa menn um, að ég er ekki sú eina sem skildi Pétur H. Blöndal á þann hátt að hann væri einfaldlega að benda á atriði sem hann teldi galla í stjórnskipulagi SÁÁ. Honum finnst óeðlilegt að ólíkir hlutar starfseminnar séu á sömu hendi. Það sjónarmið er fyllilega réttmætt.

Reyndar er öll umræða um hugsanlega hagsmunaárekstra með þeim ólíkindum hér á landi, að aldrei nokkurn tímann má benda á dæmi án þess að þeim sé svarað með heiftarlegum gagnárásum. Þegar spurt var hvort óeðlilegt væri að ráðherra vélaði um fiskveiðikerfi, ef hann ætti sjálfur hagsmuna að gæta í útgerðarfyrirtæki, heyrðust upphrópanir um að fólk væri að ráðast að móður hans, af því að hún var skráð fyrir eignarhluta fjölskyldunnar! Og ef fólki fannst óeðlilegt að sami maður tæki að sér hagsmunagæslu fyrir Faxaflóahafnir, m.a. gagnvart framkvæmda- og skipulagssviðum Reykjavíkurborgar, um leið og hann sæti sem formaður framkvæmdaráðs borgarinnar og varaformaður skipulagsráðs, þá var vegið að honum og fjölskyldu hans! Umræðan situr föst, eins og kökkurinn í hálsi þeirra sem verða að sæta þessum "árásum". Aldrei minnist ég þess að einhver hafi stigið fram og þakkað kærlega fyrir að vakin hafi verið athygli á að hann gæti hugsanlega komist í þá stöðu að hægt væri að efast um heilindi hans. Því hver vill vera í þeim sporum?

Í ljósi þessa þarf kannski engan að undra þótt þingmenn grípi ummæli Péturs H. Blöndal á lofti og reyni að gera þau tortryggileg. Þeir vita sem er, að í þeirra hópi geta eðlilegar ábendingar um hvernig komast megi hjá hagsmunaárekstrum, talist heiftarlegar, persónulegar árásir. Slíkt happ lætur enginn sér úr hendi sleppa.

En á meðan situr þjóðin við símann og svarar neitandi þegar Gallup spyr hvort hún treysti þinginu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: birna

Takk fyrir málefnalega grein

b

birna, 11.3.2007 kl. 22:44

2 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Flott grein og kemur einmitt inná hugsunarhátt sem maður saknar sárlega innan sala Alþingis.

Svanur Sigurbjörnsson, 14.3.2007 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband