Gamla og unga augað

Ég eldist mishratt. Þá á ég ekki við að ég eldist hraðar í vetrarhörkum, en haldi í horfinu á sumrin. Eða skorpni upp á sumrin og geymist betur í vetrarhörkum. Nei, ég á við að ég eldist ekki öll jafnhratt. Augun eru til dæmis hvort á sínum áratugnum.

Ég hef lengi verið afskaplega sjóndöpur á vinstra auga. Svo óhemju nærsýn, að engu tali tekur. Hægra augað hefur hins vegar verið aldeilis frábært og bjargað mér margoft. Þetta fyrirkomulag háði mér ekkert sérstaklega og í hagsýni minni fagnaði ég mjög að þurfa bara að nota linsu í annað augað.

Svona gekk þetta árum saman. Síðasta haust fluttum við hins vegar í nýtt hús og eitt af því sem fylgir slíkum flutningum eru uppsetningar á ljósum og stundum þarf að skipta um rafmagnsklær. Verkefni af þessum toga hafa ávallt verið í mínum afskaplega hæfu höndum og ég tók auðvitað til óspilltra málanna við flutningana. En nú brá svo við, að skrúfur á klóm voru eitthvað erfiðar. Smáar og skrítnar. Ég færði þær upp að andlitinu, en sá þá jafnvel enn verr. Þá reyndi ég að halda þeim fjær, en ekkert gekk. Ég sá bara ekki þetta smotterí almennilega, sama hvað ég reyndi.

Einhvern veginn komust nú öll ljós upp og virka flest. Ég velti þessu ekkert sérstaklega fyrir mér fyrr en ég ætlaði að taka duglega törn á jólabókunum. Þá fékk ég staðfest, að það var eitthvað bogið við augun. Og ég sem var búin að ímynda mér mánuðum saman að ég væri bara of syfjuð á morgnana til að lesa blöðin!

Jæja, ég fór til augnlæknis og þá kom hið sanna í ljós. Vinstra augað var enn jafn heiftarlega nærsýnt og fyrr, en hægra augað hafði allt í einu áttað sig á því að kerlingin var farin að gamlast og ákveðið að verða fjarsýnt. Engin furða að mér gengi bölvanlega að fókusa við þær aðstæður.

Nú verð ég að fara í laseraðgerð á nærsýna auganu á morgun. Bara til að þóknast þessu gamla, hægra auga, sem ákvað að minna mig svona óþyrmilega á að aldurinn færist yfir.

Ætli ég endi ekki með tvískipt lesgleraugu áður en ég veit af?

Svei þvi!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vera

Ég er nú á þeirri skoðun að allur þessur lestur í lagadeildinni hljóti að vera mein-óhollur og sjónskemmandi. Það ættu kannski að fylgja með sett af gleraugum innifalin í skólagjöldunum?

Vera, 14.3.2007 kl. 00:20

2 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Smartast (eða þannig) er þó að halda lesefninu alveg upp við andlitið og lesa fyrir ofan gleraugun

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 14.3.2007 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband