Hjónabandið

Ég hitti séra Kristin Jens Sigþórsson í gær. Hann var um tíma blaðamaður á Mogganum, en er núna sóknarprestur í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Kristinn Jens ræddi m.a. við mig um hjónavígslu samkynhneigðra, en hann og margir kollega hans vilja að prestar verði opinberir vígslumenn samkynhneigðra sambanda, rétt eins og hjónabanda gagnkynhneigðra. Í Mogganum í dag er haft eftir honum að hann telji sátt um þetta í samfélaginu, enda fólk farið að nota orðin hjón og hjónaband um samkynhneigða og sambönd þeirra.

Þetta get ég vottað, sem samkynhneigð kona í "staðfestri samvist". Og ég er þess fullviss að séra Kristinn hefur rétt fyrir sér þegar hann segir, að útilokun samkynhneigðra frá hjónabandinu dragi úr trúverðugleika kirkjunnar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ragnhildur mín! Mikið er ég fegin að sjá (og lesa) að þú ert ekki dauð úr öllum æðum, hvorki í skrifum né í tjúttinu. Hefði haldið að þú værir búin að vera í Noregi í margar vikur frekar en daga, sakna bloggsins frá þér. Það eru þrjár síður sem ég fer inn á í daglegum bloggrúnti mínum, fyrir utan mbl.is, Zigmarr, Ragnhildur og Ástublogg og því mikil vonbrigði þegar ekkert er inni á síðunni þinni. En að öðru. Hver segir að þetta þurfi endilega að heita hjón og hjónaband? Hvað með kærleiksband? Pör, af hvaða kyni sem þau eru, eru að bindast kærleiksbandi fyrst og fremst og þar með er í raun verið að tala um kærleiks(sam)band sem er miklu meira lýsandi fyrir þessa athöfn og innihaldi hennar en nokkurt hjónaband. Hefðin má ekki verða til þess að við hýrumst áfram í moldarkofanum hvað þetta varðar. Nú er bara að treysta á prestastefnuna fyrir norðan að taka á þessu í eitt skipti fyrir öll. Knús, Olla.

Ólöf Marín Úlfarsdóttir (IP-tala skráð) 24.4.2007 kl. 12:49

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Margblessuð og sæl mín kæra! Ég er nú ekki viss um að ég standi undir þessari pressu, að eiga að sjá þér fyrir þriðjungi af daglegri bloggþörf  En að sjálfsögðu mun ég reyna að láta ekki svona langan tíma líða.

Jújú, þetta má heita kærleiksband ef hjónabandið vefst eitthvað fyrir fólki. En hins vegar er engin ástæða til að fara að nefna sambönd samkynhneigðra einhverju sérstöku heiti, til "aðskilnaðar" frá öðrum samböndum. Það er jú enginn munur þar á.

Megi prestastefnan taka af skarið, fyrir tilstuðlan hinna fjörutíu fræknu!

Að öðru: Það styttist í pallinn og heita pottinn í Logalandinu. Og ef sumarið kemur líka, þá fer nú að verða fundarfært í garðinum

Ragnhildur Sverrisdóttir, 24.4.2007 kl. 14:11

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Æ, og ég má til með að leiðrétta færsluna, hann séra Kristinn er nefnilega Sigurþórsson, ekki Sigþórsson. Sorrý, séra!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 24.4.2007 kl. 14:35

4 identicon

jæja ég sætti mig við færslur af og til þá... En hlakka rosalega til að komast í garðpartý til þín í Logalandið, kominn tími á hitting. Og varðandi kærleiksbandið, þá meinti ég sko að hjónabandið yrði bara strokað út úr lögunum og í staðinn kæmi kærleiksband. Ég skal semja þessa lagabreytingu, no prob! Ég væri til í að vera í kærleiksbandi með Sigga mínum frekar en hjónabandi  finnst það miklu flottara.

Ólöf Marín Úlfarsdóttir (IP-tala skráð) 24.4.2007 kl. 16:15

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Þú sérð það auðvitað, Olla, að ég er búin að skrifa heilan helling í dag, bara til að gleðja þig

Og ég skildi þig vissulega svo, að þú vildir að öll hjónabönd hétu eftirleiðis "kærleiksbönd", svo þetta var ekki hugsað sem gagnrýni á þig.

Megi kristilegu kærleiksblómin spretta.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 24.4.2007 kl. 16:43

6 identicon

Hehehehehe......

Ólöf Marín Úlfarsdóttir (IP-tala skráð) 24.4.2007 kl. 20:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband