26.4.2007 | 11:00
(sumir) í faðm kirkjunnar
Þjóðkirkjan hafnaði mér enn á ný.
Það er þá jafnt á komið með okkur.
Eini ljósi punkturinn við þetta er að ég hef alltaf lúmskt gaman af að fylgjast með biskupi fara hring eftir hring í röksemdafærslunum þegar hann er að verja afstöðu sína.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já, ég held það hljóti í raun teljast bara nokkuð gott að vera hafnað af "svona" fólki...
Ekki langar mig í faðm þessarar kirkju... ég faðma þá sem ég get elkskað... og elka mig, því eons og sagði á einum stað: "Illt er að binda ást við þann, sem enga kann á móti"
Viðar Eggertsson, 26.4.2007 kl. 11:04
Mæl þú manna heilastur! Raunar ætti þetta að vera mantra allra samkynhneigðra, sem lita til þjóðkirkjunnar í von um að svartstakkar þar skipti um skoðun.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 26.4.2007 kl. 11:13
21. öldin er greinilega ekki byrjuð alls staðar. Og ég þurfti bókstaflega að nudda eyrun þegar ég heyrði í Geir Waage í Kastljósinu í gær. Ekki hægt að leggja að jöfnu sambúð og hjúskap karls og konu og sambúð fólks af sama kyni? Ha? Hvað, varpa kirkjudeildir annars staðar í heiminum sprengjum á Biskupsstofu ef þjóðkirkjan tekur ekki sjálfstæðar og upplýstar ákvarðanir? Og mætti ég vinsamlegast biðja um uppdateringu á hugtakinu ÞJÓÐkirkjan.
hke (IP-tala skráð) 26.4.2007 kl. 12:06
Ég er nú samt að hugsa um að láta það vera að segja mig úr sóknarnefndinni. Ég er svo heppin að hafa nútímalegan sóknarprest, sem væri alveg til í að vígja samkynhneigða ef hún hefði til þess leyfi. Reyndar voru fjörlegar umræður á fundi um daginn. Ég held að baráttan innan frá þurfi að vera til staðar líka. Kveðjur,
Sigríður Jósefsdóttir, 26.4.2007 kl. 13:31
Sko ef ég væri prestur, þá gæti ég í fyrsta lagi kallað mig Séra Vera, sem er nú nógu skemmtilegt í sjálfu sér til að hætta þessu lögfræðibulli og skella sér í guðfræði..., en þá myndi ég nú líka mótmæla þessum kjánaskap. Hefur þetta lið aldrei heyrt talað um mannréttindi?
Vera, 26.4.2007 kl. 17:07
Sammála þér Vera, þetta er ekkert annað en hreint og klárt mannréttindabrot. Það er varla meira um það að segja, dapurt. Og verst að Siggi minn var ekki á prestastefnunni.... hefði reyndar ekki nægt en það vantaði greinilega fleiri. Og síðan var Geir að tala um hjónaband og barneignir
Hvað koma barneignir hjónabandi við? Jú, það er þannig að fólk stofnar til hjónabands til þess að eignast börn#&%!=/ What? NEI! Ég þekki fólk sem hefur engan áhuga á að eignast börn en er gagnkynhneygt og í sambandi eða hjónabandi. Maður gengur ekki í hjónaband til að eignast börn, maður bara eignast börn ef mann langar til þess eða ekki - kemur þessu máli svo gjörsamlega ekkert við - þetta var hallærislegt komment hjá Geir Waage í Kastljósinu.
Ólöf Marín Úlfarsdóttir (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 00:28
Já, þetta var hallærislegt komment hjá Geir Waage. Samt með því skásta sem hann setti út úr sér. Undarlegast var að hlusta á hann tala um fagnaðarerindið í öðru orðinu, en vara svo við því í hinu að kirkjan færi eftir almenningsálitinu. Hún hefði t.d. fylgt slíkum þrýstingi í Þýskalandi nasismans!
Svei mér þá!! Kirkjan hafði sem sagt rangt fyrir sér þegar hún elti almenning í stuðningi við nasista og út úr þessu má líklega lesa að núna eigi hún ekki að gera sömu mistök með því að hlaupa til stuðnings við þá sem vilja mannréttindi samkynhneigðra!
Aldeilis dásamlegt þegar svona menn boða "fagnaðarerindið"
Annars á ég að hætta að æsa mig yfir því sem svokölluð "þjóð"kirkja gerir, ég fór þaðan eftir áramótaræðu biskups í fyrra og er ekkert á leiðinni til baka á næstunni.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 27.4.2007 kl. 09:34
Það var dökk lýsing hjá Akureyrar prestinum þegar hann talaði um að umræðurnar og atkvæðagreiðslan hefði farið fram fyrir luktum dyrum, dregið fyrir alla glugga og allt í lás. Hvað eru þeir að fela?
Ég er brjáluð yfir þessu - ég er svo reið!!!!!!
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 28.4.2007 kl. 11:53
Var ekki þjóðkirkjan að samþykkja blessunarritúal fyrir samkynhneigð pör? Hvernig er hægt að túlka það sem höfnun? blessunarritúalið er viðbót við kirkjulegar athafnir, og býður svo sannarlega samkynhneigða velkomna. Guð blessi þig og fjölskyldu þína við þurfum á þér að halda í kirkjunni okkar!
Guðrún Sæmundsdóttir, 30.4.2007 kl. 22:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.