30.4.2007 | 09:39
Síðasti dagur á Mogga
Nú er síðasti starfsdagurinn á Mogga runninn upp. Það er dálítið undarlegt að vera að hætta störfum hérna eftir allan þennan tíma. Reyndar hef ég nú tekið pásur frá Mogga áður, fyrst þegar ég skrapp til Noregs og vann á ryðvarnarverkstæði í eitt ár (jamm, löng saga...), svo fór ég til Kaliforníu í 2 ár en vann að vísu úr fjarska fyrir Mogga og loks dreif ég mig svo í laganámið. Það var lengsta fjarveran af Mogga, en eftir BA-prófið síðasta vor fór ég aftur í faðm Árvakurs.
Nú hef ég loksins ákveðið að láta gott heita. Mig langar að fást við eitthvað annað. Eða réttara sagt, einhver önnur skrif, því ég reikna nú með að halda áfram að setja eitthvað á blað.
Þessu bloggi ætla ég líka að breyta úr prívat hugleiðingum mínum í allsherjarblogg heimilisins. Þá skrifa ég stundum, Kata skellir inn sínum hugleiðingum af og til og dæturnar líka (o.k. þær þurfa að vísu að læra að skrifa fyrst, en þær eru auðvitað svo stórvel gefnar að það styttist mjög í það).
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk Ragnhildur fyrir öll árin þín á mogganum - ég hef oft lesið pistlana þína mér til ánægju.
Gangi þér vel á nýjum vettvangi
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 30.4.2007 kl. 09:55
Ja hérna hér - þetta minnir mig á skilnað minn við RÚV. Þar starfaði ég á sumrin frá 1981, tók mér pásu þegar ég fór til Íþöku í nám en vann svo fast þar til 1997. Síðan hef ég verið í stöku verkefnum en ekkert fast. Svo uppgötvar maður að það er líf eftir RÚV - í þínu tilfelli líf eftir Mogga. Ertu með eitthvað fast í hendi varðandi starf eða ?????
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 30.4.2007 kl. 10:40
"Bjútíið" við þetta er nú einmitt að ég veit ekki svo gjörla hvað tekur við! Það er skemmtileg tilbreyting eftir að hafa verið í fastri vinnu frá 1984
Ragnhildur Sverrisdóttir, 30.4.2007 kl. 12:47
Og bestu þakkir fyrir góðar óskir mér til handa, Ólína
Ragnhildur Sverrisdóttir, 30.4.2007 kl. 12:47
Ég er dálítið hrædd um að þú verðir stofuplöntum og hvítvíni að bráð. Ekki byrja að tala við neitt sem hefur laufblöð, ok?
hke (IP-tala skráð) 30.4.2007 kl. 14:29
Ég hef alltaf forðast að ávarpa allt með laufblöð eftir að ég sá The Lonely Guy með Steve Martin. Hann var svo skelfilega örvæntingarfullur af einsemd að hann fékk sér burkna.
Mér tekst alltaf að drepa allar plöntur. Væri nú ekki toppurinn að vafra um húsið í hvítvínsþoku og drepa svo eina félagann?
Ragnhildur Sverrisdóttir, 30.4.2007 kl. 15:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.