Garðpallur og áhorfendapallar

Ljúf helgi runnin upp og ljúfir dagar að baki. Við Kata fórum með nokkrum vinnufélögum mínum (nei, fyrrverandi vinnufélögum) af Mogga á Sjávarkjallarann á fimmtudagskvöld. Góð kvöldstund með góðu fólki. Frænkur systranna, Unnur og Kata, voru að passa. Stelpurnar dýrka þessar frænkur sínar og finnst allra best þegar báðar koma að passa. Elísabet lýsti því svona: "Sko, Unnur er mjög góð. Hún er eins og afmæliskaka. En Kata er eins og rjómi á kökuna, svo það er enn betra þegar hún kemur líka." Líkingar Elísabetar ganga afskaplega oft út á mat Wink 

Í gærmorgun vaknaði Elísabet með svo hrikalegan hálsríg að hún gat sig varla hreyft. Við fórum með Margréti á leikskólann, en Elísabet fékk að dingla með mér fram að hádegi, en fór svo á leikskólann.

Eftir leikskóla brunaði ég með stelpurnar í Hafnarfjörð, þar sem Kata spilaði handbolta eftir langt hlé. Þarna var eitthvert old-girls mót, með gestum frá Danmörku og Noregi. Kata og co. voru nú ekkert sérstaklega gestrisnar, völtuðu yfir þær norsku 17:7 og yfir þær dönsku 14:6. Svo eru fleiri leikir í dag. Systurnar voru mjög áhugasamar um handboltann, en Margrét fokreiddist að vísu í hvert sinn sem einhver snerti á mömmu hennar. Eftir að hafa eytt hálftíma í að útskýra aftur og aftur fyrir henni að það væri ekkert óeðlilegt þótt andstæðingarnir reyndu að stoppa gegnumbrot mömmu hennar og benda henni á að mamma hennar gerði slíkt hið sama í vörn, þá gafst ég hreinlega upp. Margrét var bara foxill út í þessar útlendu konur og áttaði sig engan veginn á þeirri hroðlegu útreið sem þær fengu á stundum hjá Kötu og co.

Þegar við komum heim í gærkvöldi, eftir viðkomu á Ruby Tuesday, var búið að hlaða pallaefni í heimreiðina. Í næstu viku byrjar pallasmíðin mikla í Logalandi og innan tveggja vikna verður hér parketlagður garður, með heitum potti og alles. Svo þarf bara að flytja garðinn eins og hann leggur sig á suðlægari slóðir, svo hægt sé að njóta pallsins... Nei, annars, mér skilst að hérna í Fossvoginum sé alltaf blíða og eintóm sæla, þótt blási um fólk annars staðar í borginni. Við settumst nú gjarnan upp á nágranna okkar á nr. 2 síðasta sumar, áður en við fengum húsið afhent, og þar var alltaf sól og hiti. Svo sögðu tilvonandi nágrannar í næstu götum okkur sögur af því hvernig þeir vöktu mikla athygli með því að þvælast á stuttbuxunum sínum út úr hverfinu. Íbúar annarra hverfa horfðu kappklæddir í forundran á þessi fyrirbæri úr Fossvoginum, sólbrennd og léttklædd. (Hérna í Fossvoginum er svipuð stemmning og á Akureyri, allir halda því alltaf fram að hér sé alltaf blíða).

Stelpurnar eru núna úti á palli, þ.e. að klifra í timburstæðunum framan við hús. Mér sýnist nýting þessa palls því ætla að verða með allra besta móti.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Sko! - nú skulum við koma í hverfaslag

Mesta lognið er hér hjá mér í Vogahverfinu. Hér blæs ALDREI þó svo að önnur hverfi leiki á reiði skjálfi.

Nei í alvöru talað - ég blessa lognið hér daglega - þvílíkur munaður......

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 5.5.2007 kl. 19:25

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég er nú í svo góðu skapi vegna tilvonandi palls að ég er til í að samþykkja að það sé líka logn í Vogunum. Og þori varla að skrifa það opinberlega, en mikið and..... getur nú blásið alltaf hreint á æskustöðvum mínum í Vesturbænum!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 5.5.2007 kl. 19:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband