Groban gubb

Úff, ég fæ aulahroll þegar ég heyri í þessum Josh Groban. Samt er ég ábyggilega í markhópnum, kelling á miðjum aldri sem vill ekki hlusta á neitt agressívt, bara ljúfa og létta tóna. En, Drottinn minn, þarfnast heimurinn virkilega annars Michaels Boltons? Kellingar á miðjum aldri muna alla vega allt of vel eftir þeim beljara.

Svo er Groban þessi kynntur sem snillingur af því að hann blandar saman poppi og klassík. Af því að það er svo óhemju frumlegt. Right!

Á midi.is eru menn ekkert að spara stóru orðin: Groban er listamaður sem á sér engan líka. Hann er í grunninn klassískur söngvari en hefur náð alheimshylli með því að tvinna sína stórkostlegu og fjölhæfu barítóna rödd við kraftmikla melódíska popptónlist.

Astraltertugubb.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sko elsku frænkubabe.....
Nú varð ég sko sár.....Josh er nefnilega einn af mínum uppáhalds og ég sat með fingurinn á enter-takkanum kl.10 einhvern morguninn til að ná í miða á Eurocard-forsölu...hehehe  (og nota-bene ég fer ALDREI á tónleika).
Skil bara ekki að þú ALÆTAN hlustir ekki á svona snilling eins og hann, og ég sem fékk mína fyrstu tónlistarreynslu í herberginu þínu á Einimelnum við að hlusta á Elton John og Marianne Faithful (ef ég man rétt).....og dundaði mér líka við að plokka segulbandið upp úr spóluhulstrinu á meðan.
Held ég þurfi að fara að endurskoða trú mína á "Tónlistar-Döllu" hehehehehehe.

kv. Greta

Greta (IP-tala skráð) 7.5.2007 kl. 13:47

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Já en mín kæra!? Sérðu ekki hvað það er ógnarlangt á milli þessa Grobbara annars vegar og Elton John hins vegar, að ég tali nú ekki um það eðalkvendi Marianne Faithful?

Jæja, það er nú kannski eins gott að fólk hafi misjafnan smekk, annars væri óskaplega dauflegt um að litast og á að hlýða

Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.5.2007 kl. 13:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband