Nafnlausir fyrirliðar

Á forsíðu íþróttablaðs Moggans í gær voru tvær nákvæmlega jafn stórar myndir af fyrirliðum karlaliðanna í fótbolta og fyrirliðum kvennaliðanna.

Undir myndunum var tveggja hæða fyrirsögn sem vísaði bæði til karla og kvennaliðanna, sem berjast um Íslandsmeistaratitilinn í sumar.

Í greininni var talað við tvo karla og eina konu. Skrifin um kvennaboltann voru vissulega fyrirferðarminni í textanum en skrifin um karlaboltann, en samt leit þetta allt svo undur vel út. Augljóslega hafði verið haldinn myndarlegur kynningarfundur um svokallaða Landsbankadeild karla og kvenna og Morgunblaðið virtist fjalla nánast jafnt um báðar deildirnar á þessari forsíðu.

Svo las ég myndatextana.

Undir myndinni af körlunum tíu voru talin upp nöfn þeirra allra og liða þeirra.

Undir myndinni af konunum átta stóð: Hér eru fyrirliðarnir hjá félögunum sem skipa Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í sumar.

Þetta er ekkert nema anskotans virðingarleysi og sýnir að "jafnt vægi" í forsíðuumfjölluninni er ekkert nema sýndarmennskan. Hið rétta hugarfar skýtur upp kollinum þegar kemur að því að ganga frá myndatextanum. Þá er engin ástæða til að tíunda nöfn kvennanna og liða þeirra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: birna

mæl þú kvenna heilust

stelpurnar okkar þurfa fyrirmyndir til að vita að hverju þær geta stefnt. Þær þurfa að sá myndir og kunna nöfn á þeim sem eru "aðal".

birna, 11.5.2007 kl. 11:05

2 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Það eru alltof einhliða íþróttafréttirnar, Samt er nú meira fjallað um fótboltamótin hjá börnunum heldur en handboltamótin, ég hef verið með tvo krakka í handboltanum og íþróttafréttamenn virða handboltakrakkana ekki viðlits Svo er verið að hamra á jákvæðum fyrirmyndum fyrir börn. Skyldu stúlkur eiga að taka sér París Hilton til fyrirmyndar?

Guðrún Sæmundsdóttir, 13.5.2007 kl. 18:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband