17.5.2007 | 18:47
Heilagur hamborgari!
Systur vilja gjarnan fara á McDonald's í tíma og ótíma, en mæður standa mjög gegn því. Í dag var Margrét dálítið að suða, fannst alveg kjörið að fara á þennan uppáhalds veitingastað í dag. Við Kata vísuðum til þess að þær hefðu fengið McDonald's í afmælisveislu í Ævintýralandi Kringlunnar í gær og þótt maturinn þar væri í lagi af og til vildum við ekki að þær borðuðu hann oft. Margrét var mjög ósátt við þetta og Elísabet reyndi að koma systur sinni til hjálpar með því að benda á að ekki væri kjöt óhollt og ekki væri brauð óhollt, svo hamborgari væri ekkert óhollur.
Eftir töluverðar umræður um McDonald's og alls konar hluti aðra, sem ýmist væru hollir eða óhollir, virtist Margrét loks vera búin að sætta sig við sjónarmið mæðranna. Eftir drykklanga stund spurði hún: "Er hollt að gera skemmtilega hluti?" Mæðurnar voru aldeilis á því að fátt væri betra heilsu fólks en gleði og skemmtilegheit. En höfðu þar með verið leiddar í gildru, því Margrét sagði: "Mér finnst skemmtilegast af öllu að fara á McDonald's!"
Þrátt fyrir þessa röksemd högguðust mæðurnar ekki. Elísabet ákvað að gera úrslitatilraun: "Mér finnst að við eigum að fara á McDonald's af því að í dag er dagurinn þegar Jesús, besti vinur barnanna, fór upp til himna!"
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Slyngar stelpur sem þið eigið
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.5.2007 kl. 21:22
Ansi hreint góð rök hjá þeirri stuttu. En McDonalds æðið gengur yfir. Nú vilja mínar helst fara á Subway sem er hið besta mál.´
Við foreldrarnir fórum oft með stelpurnar litlar á kaffihús og fannst fátt skemmtlegar. En á tímabili þegar slíkar ferðir urðu eitt sulluverk - svona þegar þær voru tveggja og fjögurra - þá fórum við frekar á Makkann. Það var einhvernveginn svo gasalega þægilegt.
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 18.5.2007 kl. 09:37
Rökfastar og ákveðnar stelpur :]
birna (IP-tala skráð) 18.5.2007 kl. 10:24
Margrét er sérstaklega lagin við að leiða okkur í svona gildrur. Þegar hún vildi endilega eignast yngra systkini spurði hún hvort hún mætti fá kettling, vitandi að svarið yrði nei, af þvi að ég er með ofnæmi. "En hvolp?" spurði hún og auðvitað var svarið hið sama. Ég var hins vegar í mestu vandræðum þegar hún spurði, sigri hrósandi: "Ertu með ofnæmi fyrir núll ára börnum?"
Já, ég þræti ekki fyrir að þessar stelpur okkar eru klárar. Og eins gott að reyna ekki að gabba þær neitt, því þær eru naskar á veilur í röksemdafærslum.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 18.5.2007 kl. 11:25
Þú sendir þær í lögfræðina um leið og þær hafa aldur til!
Ég veit ekki hvar hún lærði það, en dóttir mín sagði í sunnudagsbíltúrnum síðastliðna helgi, "mamma, mig langar í hest!". Nota bene - ungfrúin góða er tveggja og hálfsárs! Þegar ég burstaði það af mér með afsökunum um að það væri sko ekki pláss fyrir neinn hest heima hjá okkur, sagði mín galvösk "en mamma, mig langar svoooo í hund!" Þetta á væntanlega ekkert eftir að batna
Vera, 18.5.2007 kl. 12:30
Maður á náttla ekki sjens í svona rökfestu (á gamals aldri).
Ég kannast við þessar McD vinsældir og læt stundum undan þrýstingi. En það er ekki hægt að láta börnin moka í sig transfitusýrum út í eitt. Nýjasta tilbrigðið er naggar, gulrætur (og dót). Veldur aðeins minna samviskubiti að sleppa frönskunum...
hke (IP-tala skráð) 18.5.2007 kl. 13:30
Frábær saga og skemmtilegar stúlkur sem þú átt! þessi börn eru svo einstök að það er eins gott að setja allt á prent sem þau segja svo það gleymist ekki hvað þau eru klár.
Edda Agnarsdóttir, 19.5.2007 kl. 20:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.