Hlaupahjóladrottningin

Systur eru með hjólreiðadellu þessa dagana. Margrét hjólaði um allar trissur um leið og hjálpardekkin voru tekin af hjólinu hennar, en Elísabet var aðeins lengur að ná ballans. Núna stendur hún sig ágætlega, en á stundum í vandræðum með að komast af stað.

Familían fór í hjólreiðatúr um Fossvogsdalinn á dögunum. Kata var búin að flikka upp á hjólið sitt, en okkur fannst alveg frábær hugmynd að ég færi á hlaupahjóli. Þá gæti ég alltaf stoppað þegar þörf krefði og aðstoðað Elísabetu.

Þegar mæður 6 ára stelpna leggja af stað í hjólreiðatúr verða þær að sjálfsögðu að sýna gott fordæmi og skella á sig hjálmi. Það gerðum við Kata samviskusamlega. Hjálmurinn minn er heiðblár og klæðir mig óskaplega vel, eins og gjarnt er með slík höfuðföt. Til að kóróna múnderinguna skellti ég nestistösku um mittið. Hún er með alls konar hólfum (fyrir snýtubréfin, plástrana og súkkulaðimolana) og tveimur stórum vatnsbrúsum.

Svo lögðum við af stað. Kata og Margrét þeystu á sínum fákum niður allt Óslandið, en við Elísabet ákváðum að leiða hlaupahjólið og hjólið hennar, enda var hún enn á því stigi að þora ekki niður brekkur. Þegar við komum niður í dalinn steig Elísabet á hjólið, ég ýtti á eftir henni, hún hjólaði af öllum lífs og sálar kröftum og ég hljóp af stað á hlaupahjólinu.

Ég fann strax að það var ekki gott að hafa mittistöskuna, því í hverri spyrnu rakst ég í vatnsbrúsana. Ég sneri töskunni aftur á rass, vatnsbrúsarnir voru eins og eldsneytisgeymar eldflaugar við afturendann á mér.

Fjölskyldan hélt í vesturátt eftir Fossvogsdal. Kata og Margrét hjóluðu langt á undan, en sneru við af og til og fylgdust með okkur Elísabetu. Elísabetu gekk reyndar mjög vel og því miður þurfti hún nánast aldrei að stoppa og því nánast aldrei að fá aðstoð við að komast af stað á ný. Ég fékk því enga pásu, heldur hljóp og hljóp á hlaupahjólinu á eftir fjölskyldunni á reiðhjólunum.

Við vorum farnar að nálgast skógræktarsvæðið vestast í dalnum þegar ég gafst upp og bað Kötu og systurnar vinsamlegast að snúa við, því ég treysti mér ekki alla leið í Nauthólsvík á þessu farartæki. Þær tóku vel í það, ég hjálpaði Elísabetu að snúa sínu hjóli og leggja í'ann og svo hurfu þær allar þrjár inn eftir Fossvogsdal.

Ég bölvaði í hljóði, beit á jaxlinn og hamaðist eins og vitlaust manneskja á hlaupahjólinu. Mér fannst þetta ekkert skemmtilegt. En áttaði mig nú ekki á því hvað þetta var neyðarlegt fyrr en ég sá svipinn á hjónunum sem ég mætti. Þau gátu auðvitað ekki vitað að ég væri sérlegur aðstoðarmaður 6 ára stelpu, sem var löngu, löngu horfin inn eftir dal. Þau sáu bara konu á miðjum aldri á hlaupahjóli, með fagurbláan hjálm á höfði, eldrauða í framan af áreynslu og með tvo eldsneytistanka upp úr rassinum.

Þarna var mér nóg boðið. Ég öskraði á Kötu og stelpurnar af öllum kröftum. Mér var reyndar sama þótt þær heyrðu ekki í mér, ég vildi bara tryggja að allir á göngustígnum gerðu sér grein fyrir að ég var alls ekki ein á ferð. En þær heyrðu í mér og sneru við. Ég útskýrði stöðu mála fyrir Kötu og sagði henni að þær mættu ekki víkja langt frá mér. Mannorð mitt væri að verði.

Kata sýndi mér afskaplega mikinn skilning og hluttekningu. Hún hefði samt verið meira sannfærandi ef hún hefði ekki hlegið svona mikið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í svona félagsskap, þarf maður væntanlega ekki að eiga óvini.

hke (IP-tala skráð) 20.5.2007 kl. 16:49

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Blessuð og sæl Ásdís og þakka þér fyrir gott boð. Ég kýs alla vega að taka þessu eins og þú mælir af heilindum og sért löngu búin að gleyma að ég gæti framið sjálfsmorð með því að þefa af hesti, hvað þá fara í útreiðartúr. Hrædd um að ofnæmið hafi sem sagt ekkert skánað á síðustu árum

Ragnhildur Sverrisdóttir, 23.5.2007 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband