Sofa, plís!

Edda uppáhaldsfrænka, dóttir Möggu systur, passaði systurnar á laugardagskvöldið. Edda er afskaplega lítið fyrir að stressa sig á hlutunum, enda dýrka stelpurnar hana. Á laugardag fengu þær að horfa á bíómynd, en Edda steinsofnaði í sófanum. Hún vaknaði rétt fyrir tíu við að systur ýttu við henni og spurðu: "Hvenær eigum við eiginlega að fara að sofa?"

Edda reyndi að hrista af sér slenið og skellti sér í barnapíugírinn: "Farið í náttföt!"

Stelpurnar bentu henni á að þær væru báðar komnar í náttkjóla.

"Hmmm, þá þurfið þið að tannbursta ykkur!" sagði barnapían og var svona hérumbil, næstum alveg vöknuð.

"Við erum búnar að tannbursta okkur og líka pissa. Megum við núna fara að sofa?" spurðu systur.

Ég minnist þess nú ekki að þær hafi háttað sig og tannburstað og beðið mæður sínar um að fá að fara að sofa. Kannski ættum við að prófa að sofna á undan eins og Edda, þá átta þær sig á að það er framorðið Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ef ég má þá vill ég ekki, ef ég má ekki þá er ég vil ég!  Flott heimspeki og nú er bara að hendast í rúmið og sofna til að fá börnin í svefn.  Flott hún Edda!

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2007 kl. 17:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband