22.5.2007 | 10:12
Mikilvægt
Sumarið kemur og fer, en pallurinn er alla vega kominn í garðinn Nú þarf ég bara að ná í kappana sem ætla að tyrfa frímerkið sem eftir er af grasflötinni og rafvirkinn þarf að skella upp ljósum og tengja blessaðan pottinn. Þegar þetta verður allt frágengið verður éljagangurinn vonandi afstaðinn.
Systur fóru í útskriftarferð með leikskólanum í morgun. Þær aka í Vatnaskóg og verða þar allan daginn. Ég held að þeim hafi þótt allra flottast að foreldrum var "stranglega bannað" að fara með. Margrét var þó dálítið óörugg í morgun og kvartaði undan magaverk og Elísabet tók hátíðlegt loforð af Auði leikskólakennara að verða sér "samferða" í gegnum Hvalfjarðargöngin. Þær voru báðar glaðar þegar ég skildi við þær á leikskólanum og gleði þeirra hefur áreiðanlega ekkert minnkað síðan. Margrét var að hugsa um að semja lag um Hvalfjarðargöng, sem hún og hinir krakkarnir gætu sungið á leiðinni, svo enginn yrði hræddur.
Þetta minnir mig á þegar Margrét og Kata voru að semja lag. Kata lagði til byrjunarlínuna "mamma mín, mamma mín", en Margrét stoppaði hana og sagði: "Nei, mamma, þetta á að vera um eitthvað mikilvægt! Þú veist, hvernig er að lifa og svona..."
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hahhahaha! Ég er í kasti
þessa dagana yfir sögunum af tvíburunum... og ekki var minna hlegið af hetjunni á hlaupahjólinu (verð samt að viðurkenna að mér finnst þú algjör hetja að komast þó þetta langt, hefði ekki getað það sjálf). Þetta heldur í mér lífinu þessa dagana yfir lestri skuldaskilaréttar
Áfram með bloggið (by the way, Simmi er hættur að blogga þannig að nú er pressan enn meiri á þér). Knús, Olla.
Ólöf Marín Úlfarsdóttir (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 11:53
We aim to please
Ragnhildur Sverrisdóttir, 22.5.2007 kl. 23:19
Ég hlæ mig máttlausa af þessum dúllum.
Jenný Anna Baldursdóttir, 23.5.2007 kl. 01:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.