Klísturheilar

Ef þær systur, Margrét og Elísabet, lenda einhvern tímann í krísu og vita ekki við hvað þær eiga að starfa, þá ætla ég að benda þeim á að þær yrðu fyrirtaks leiðsögumenn.

Þær fóru í útskriftarferð í Vatnaskóg í dag með leikskólanum sínum. Um leið og þær ultu út úr rútunni fyrir framan leikskólann klukkan hálf sex byrjuðu þær að þylja upp alls konar fróðleik. Núna veit ég allt um hugmyndina að baki altaristöflunni í kapellunni á staðnum, veit hversu mörg tré forsetinn gróðursetti og hvers vegna (og hvað forsetinn heitir) og fékk að sjá mynd "af elsta húsinu í Vatnaskógi", eins og þær tilkynntu hátíðlega. Langt fram eftir kvöldi hélt slíkum fróðleiksmolum áfram að rigna yfir mæðurnar. Svo sá Margrét fjall.  "Það var svona kubbur ofan á því og það voru ský sem voru eiginlega utan um kubbinn og ég man ekki hvað fjallið heitir en ég get teiknað mynd af því."

Ég hef alltaf haldið því fram að uppbygging skólakerfisins sé kolröng. Þegar þessir litlu klísturheilar eru sem ferskastir á að troða í þá kjarneðlisfræði og slíku stöffi, en á framhaldsskólaárunum er miklu nær að dunda sér við föndur. Reyndar dundaði ég mér aðallega á þeim árum, en þar sem kerfið gerði ekki ráð fyrir því fékk ég bara bágt fyrir.

Bendi menntamálaráðherra vinsamlegast á þetta. Ég er líka viss um að fólk væri til í að stytta framhaldsskólann ef allir væru að dunda sér þar, löngu búnir að læra allt þetta erfiða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband