Frakkland er stærra en Ísafjörður

Stundum, og helst þegar ég er að springa úr monti yfir því hvað stelpurnar mínar eru gáfaðar, þá segja þær eitthvað sem slær mann alveg út af laginu.

Þegar þær hoppuðu út úr rútunni í gær, eftir útskriftarferðina, þá spurðu þær hvort þær væru komnar aftur til Íslands. Ég lét eins og ég heyrði þetta ekki, fyrir framan alla hina foreldrana. En prísaði mig um leið sæla, því ég sá fram á óskaplega billegar utanlandsferðir á næstunni, við gætum bara ekið upp í Kjós og snúið svo aftur til Íslands.

Systurnar eru líka algjörlega sannfærðar um að fæðingarland fólks ráði öllu um útlit þess og atgervi. Einu sinni beygði ég mig yfir Elísabetu í rúminu til að kyssa hana góða nótt, en varð að biðja hana að færa sig nær, því ég náði ekki til hennar. Á þeim tíma sváfu þær systur í upphækkuðum rúmum, eins konar kojum. Hún hafði einhver orð um að ég væri bara ekki nógu stór.

Svo kyssti Kata hana góða nótt. Það gekk greinilega betur og Elísabet spurði hvort Kata væri stærri en ég. Kata svaraði því játandi, en tók samt skýrt fram (eins og hún gerir við öll tækifæri) að ég hefði fæðst nokkrum árum á undan. Það er nú reyndar eins gott að taka það fram, því "stærri" þýðir enn "eldri" hjá þeim systrum.

Elísabet velti þessu töluvert fyrir sér. Svo spurði hún hvar ég hefði fæðst. "Á Ísafirði," var svarið. "En hvar fæddist þú?" spurði hún Kötu og svarið var: "Í París." Og Kata útskýrði að París væri í Frakklandi.

"Er Frakkland stærra en Ísafjörður?" spurði Elísabet og svarið var að sjálfsögðu játandi.

"Ó, nú skil ég," sagði þá snillingurinn litli, sem var búinn að finna skýringuna á stærðarmun mæðranna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband