Að vakna jafteli

Margrét reis upp við dogg, nuddaði stírurnar úr augunum og spurði: "Vaknaði ég jafteli?"

Ég skildi ekki hvað hún átti við.

Þá spurði hún: "Hvenær vaknaði Elísabet og hvenær vaknaðir þú og hvenær vaknaði mamma?"

Ég sagði henni að Elísabet hefði vaknað snemma, komið hlaupandi yfir í stóra rúm og svo hefðu þær sofnað aftur, Elísabet og mamma hennar. Ég væri nývöknuð og hefði komið beint inn í herbergi til hennar.

"Þá vaknaði ég jafteli," sagði Margrét og frekari skýringar leiddu í ljós að hún hafði vaknað "jafntefli"

Já, segið svo að fótboltaiðkun hafi ekki góð áhrif á heilastarfsemina Blush


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið er ég fegin að hægt var að vísa í fornhákarlinn, dogg. Yes! Núna veit ég að þetta ert raunverulega þú. Ekki konan í hvítvíninu og plöntunum. (Forðastu alla burkna).

hke (IP-tala skráð) 24.5.2007 kl. 11:55

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ójá, þetta er sko ég. Hef doggana á hreinu. Samt er hér nóg af hvítvíni, en ég er ekki "í því" sem stendur.

Plöntur allar dauðar, fyrir utan graslauk í eldhúsglugganum og einhverja stofuplöntu sem Kata sér um að halda á lífi.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 24.5.2007 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband