24.5.2007 | 10:22
Á ég að skrifa um eitthvað annað?
Hvernig er þetta eiginlega? Á ekki að skrifa um neitt hérna nema stelpurnar? Vissulega eru þær laaaaaang-flottastar, en samt!
Núna gæti ég til dæmis skrifað um ríkisstjórnina. Er þetta frjálslynd umbótastjórn, eins og greiningardeildir bankanna segja (doltið undarleg komment frá greiningardeildum, þykir mér) Eða er þetta hin skelfilega Baugsstjórn, besti vinur auðhringjanna, eins og Framsókn segir (sem er hrikalega fyndið, því ég man nú eftir allnokkrum framsóknartengdum auðmönnum sem fitnuðu vel í tíð fyrri ríkisstjórnar)
Ég er þokkalega ánægð með þessa stjórn. Framsókn má fara í fúlan pytt mín vegna og úr því sem komið var sá ég ekkert betra í spilunum. Ég var alveg hundóánægð fyrir kosningar, því ég skildi ekki af hverju allt þetta bullandi góðæri skilaði sér ekki til þeirra verst stöddu. Mér finnst það reyndar alltaf gerast á mestu góðæristímum, að allra tekjulægstu hóparnir gleymast, óhreinu börnin hennar Evu húka að hurðarbaki og enginn sinnir þeim. Það er fínt að horfa til efnahagsmálanna, hagvaxtar, gróða og alls þess, eins og Sjálfstæðisflokkurinn er svo flinkur að gera, en það verður nú að viðurkennast að velferðarstrengurinn var farinn að trosna verulega undir það síðasta hjá fyrri ríkisstjórn. Sá strengur er miklu sterkari innan Samfylkingar, svo ég held að þetta hjónaband geti orðið farsælt.
Umhverfismál valda mér þó töluverðu hugarangri. Ég hef ekkert nema gott um Þórunni Sveinbjarnar umhverfisráðherra að segja og er handviss um að hún á eftir að taka vel á í þessu ráðuneyti. En ég hef nú enga ofurtrú á að þessi ríkisstjórn endurskoði stóriðjustefnuna. Því miður.
Þar með er þessari pólitísku færslu lokið, og þótt fyrr hefði verið. Nú ætla ég að bregða mér af bæ. Fyrst þarf ég að skella mér í skó og þá er best að nota aðferð Margrétar: "Sko, fyrst set ég bara tærnar oní og svo allan búkinn."
Sko, farin að skrifa um þessi krútt einu sinni enn!
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl Ragnhildur
Endilega haltu áfram að skrifa um perlurnar ykkar
JFK
J Friðrik Kárason (IP-tala skráð) 24.5.2007 kl. 13:12
Það er ekki bannað að skrifa um annað en alls ekki hætta að segja sögur af stelpunum ykkar. Þær eru frábærar!
Jóhanna (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 11:38
Haltu áfram að skrifa um þær litlu, er um það bil að fara að bjóðast til að verða svona helgarpabbi!
Viðar Eggertsson, 25.5.2007 kl. 15:36
Viðar, gætt'að hvað þú segir maður! Ég hef þetta alla vega bakvið eyrað
Ragnhildur Sverrisdóttir, 26.5.2007 kl. 12:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.