Góð helgi

Urður vinkona okkar hélt upp á fertugsafmælið á Hótel Búðum á laugardag. Sem var afskaplega vel til fundið hjá henni, mikið fjör og dansað fram eftir nóttu. Aumingja fólkið sem var í þessum tveimur herbergjum sem gestir Urðar bjuggu ekki í, þeim hefur varla komið dúr á auga fyrr en undir morgun.

Systur fóru til Addýar og Báru, guðmæðra sinna, á laugardagsmorguninn. Um hádegisbilið óku þær allar í sumarbústaðinn í Skorradal og þar tók við endalaust dekurprógramm langt fram á sunnudag. Systur fóru í fótbolta með Addý, út á bát með Báru, fengu grillaðar pylsur í kvöldmat, sem er algjör regla í Skorradal og harðbannað að breyta út af því, skoðuðu þykkar Andrés-möppur uppi í rúmi á sunnudagsmorgun og höfðu alla sína hentisemi.

Þegar þær komu hingað heim í gær var þeim boðið yfir til nágrannanna í heita pottinn (okkar er enn ótengdur) og þá trylltust þær endanlega af hamingju. "Þetta er besti dagur lífs míns," hrópaði Elísabet, enda varla hægt að hugsa sér betri dag en dekur og skemmtilegheit hjá guddum og heita pottinn hjá Mörtu Maríu á eftir.

Þær voru ósköp lúnar um kvöldmatarleytið, þurftu að kúra og voru fljótar að sofna. Margrét grjótsvaf í alla nótt, en Elísabet laumaðist upp í um miðja nótt og svaf heldur órólega. Í morgun kom í ljós að hún hafði verið með martraðir, önnur snerist um hjólreiðar, hunda og krúttið hann Stefán Björn í næsta húsi, hin var "kjánaleg" að sögn dreymandans og snerist fyrst og fremst um Glanna glæp að kíkja fyrir horn (ýmislegt má nú þessi Glanni hafa á samviskunni, svei mér þá!)

Elísabet hefur reyndar alltaf átt erfitt með að tolla í rúminu sínu á nóttunni. Um daginn svaf hún þó alla nóttina og við þurftum meira að segja að vekja hana. Kata beygði sig yfir hana og knúsaði, en Elísabet settist upp og spurði: "Er komin fullorðinsnótt?" (þ.e. háttatími fyrir fullorðna) Kata svaraði neitandi og sagði að það væri kominn dagur. "Rosalega var nóttin stutt, ég sofnaði ekkert!" sagði sú stutta, en Kata útskýrði fyrir henni að nóttin liði einmitt svona hratt þegar maður svæfi. Svo hrósaði hún stelpunni sinni fyrir að sofa alla nóttina í rúminu sínu. "Af hverju ertu að segja gott hjá mér?" spurði Elísabet. "Ég var ekkert að bíða vakandi í rúminu, ég bara softi, það er ekkert að vera dugleg."

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband