29.5.2007 | 11:42
Áferð og litir
Sex ára stelpur vilja endilega missa tennur. Margrét var svo "lánsöm" að taka þurfti framtennurnar úr henni á síðasta ári og skera í þokkabót í burtu tvær tennur sem voru að þvælast uppi í gómi og hefðu getað gert óskunda þegar fullorðinstennurnar færu að reyna að potast niður.
Ári síðar bólar ekkert á fullorðinstönnunum hennar, en tannlausa brosið er ómótstæðilegt. Það auðveldar henni reyndar ekkert að vinna bug á R-leysinu, en þegar tannleysi er ákveðið status symbol stendur henni slétt á sama.
Elísabet er dálítið svekkt, af því að hennar tennur haggast ekkert. Á dögunum fór framtönn í neðri góm að láta á sér kræla og er núna öll komin upp, stór og skjannahvít. Gallinn er sá, að hún laumaði sér upp á bakvið barnatennurnar, sem sitja sem fastast, eigandanum til sárrar skapraunar. Hún hefur hótað því að byrja ekki í skóla fyrr en hún hefur misst tönn, svo vonandi skánar ástandið eitthvað í sumar.
Þrátt fyrir miklar vangaveltur um tennur og tannleysi eru þær systur ekki alveg með fræðin á hreinu. Í heimsókn til tannlæknis fyrir nokkru bað Margrét um að fá lítinn spegil til að að sjá "uxana" sína. Og varð innilega undrandi þegar hún frétti að öftustu tennurnar heita "jaxlar."
Við Kata ræddum töluvert við vinkonu okkar um helgina, en hún á stelpu sem virðist mjög lík Elísabetu að því leyti, að hún lýsir tilfinningum oft sem áþreifanlegum, gleði hefur ákveðinn lit eða áferð o.s.frv. Ekki veit ég hvort þetta fellur alveg undir fyrirbærið "samskynjun", þar sem fólk "sér" t.d. tónlist í ákveðnum litum, en það er áhugavert að fylgjast með þessu. Systir hennar hefur átt einstaka spretti í þessa veru og sérstaklega áður fyrr, en Elísabet heldur sig við þetta.
Fyrir jólin 2005 fórum við á leikritið "Leitin að jólunum" í Þjóðleikhúsinu. Það var mikil upplifun, farið um allt húsið frá rjáfri niður í kjallara og meira að segja út á þak, þar sem Grýla lét öllum illum látum. Og var pínulítið ógnvekjandi. Um kvöldið átti Elísabet erfitt með að sofna, kom fram, skreið upp í fang og lýsti hremmingum sínum svona: "Ég er alltaf að reyna að hugsa fallegt, en það er svo stíft. Og vondu hugsanirnar eru svo sleipar. Þegar vondu hugsanirnar koma þá segi ég að þær eigi að fara, en þær eru svo sleipar að góðu hugsanirnar renna bara út."
Margrét, sem hafði laumast út úr herberginu á eftir systur, hlustaði á þetta allt og kom svo með sína lýsingu: "Ég stjórna sjálf höfðinu mínu. Hérna megin (hægra) er stundum rautt þegar ég hugsa ljótt en hérna megin (vinstra) er blátt og það er gott. Ef það kemur ljótt, þá ýti ég bara hérna megin þar sem það bláa er og þá ýtir það þessu rauða út."
Fullorðið fólk fer í alls konar þerapíu, þegar það gæti bara stúderað áferð og liti !
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.