Bjórþambandi karlmenn í baði

Æ, ekki er nú sumarlegt um að litast á fína, nýja pallinum okkar Crying Allt á floti og ekkert útlit fyrir að hægt verði að viðarverja á næstunni. Og ég sem sá mig í anda sitja á pallinum alla daga, í steikjandi sól og blíðu. Og suma daga, þegar hitinn færi vel yfir 20 stigin,  með ískalt hvítvínsglas, að sjálfsögðu.

Talandi um vínglös. Sex ára stelpur, sem eiga tvær mömmur, eru af einhverjum ástæðum með það alveg á hreinu hvað konur og karlar drekka. Nú er rétt að taka það fram, að þótt mömmurnar dreypi helst á vínglasi og láti sterkari drykki eiga sig, þá er bjór hins vegar alls ekkert úthýst. O.K, reyndar er það helst einhver léttur kellingabjór, en mér er sama.

Ég fór að velta þessu fyrir mér þegar ég heyrði á tal þeirra systra í baði. Þær voru með litlar jógúrtflöskur, settu vatn í þær og þóttust súpa.

Elísabet: "Núna erum við karlmenn, Margrét". Og bætti svo við, mjög djúpum rómi: "Finnst þér þetta ekki góður bjór?"

Margrét (með afar skrækum rómi) : "Nei, ég er kona og er að drekka vín!"

Það læra börnin sem fyrir þeim er haft, en ég er enn að velta fyrir mér hvaðan þessi bjórþambandi karlmaður hennar Elísabetar kom.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hm. Spurning hvort hægt sé að grafa upp einhverja sökudólga eilítið fjær í húsalengjunni? Annars er umræðan um erfðir og umhverfi alltaf jafn áhugaverð. HH var einungis á öðru ári þegar hún byrjaði að leika sér að kaffibolla með sápufroðu í baði, og þóttist vera með "capputínó". Það er ekki nema von, sagði mamma með þjósti, þegar hún frétti þetta og bætti við: "Barnið er alið upp á kaffihúsum".

hke (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 13:07

2 identicon

Þarf að fara lengra en út á horn til að finna sökudólginn?

Steini (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 14:18

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Nágranni okkar í hinum enda lengjunnar er nú ekki beinlínis bjórsvolgrandi bolur

Svo er þetta ekki eina dæmið um undarleg áhrif, sem við áttum okkur ekki alveg á hvaðan koma. Elísabet var með poka af saltstöngum um daginn, lét eins og hún reykti eina og hélt svo pokanum hátt á loft: "sjáðu hvað ég á margar reykjur!" O.K., vissulega ekki alveg með þetta á hreinu, en samt... Ætli við verðum ekki að kenna blessuðu sjónvarpinu um þetta allt saman

Ragnhildur Sverrisdóttir, 4.6.2007 kl. 15:32

4 identicon

Sjónvarpinu? Jújú. Enda mikið reykt og drukkið í barnatímanum.

hke (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 18:11

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

hmmm, við getum alla vega kennt Hómer Simpson um bjórinn...

Ragnhildur Sverrisdóttir, 4.6.2007 kl. 21:07

6 identicon

hæ,frábærar frænkur ,og eldklárar.Datt í hug hvort þær hefðu kannski séð einhvern drekka einn bjór hér bestu kveðjur og knus Ásta frænka í Kleifarás

ÁSthildur (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 20:39

7 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Jahá, þarna kemur skýringin! Matti mágur hefur innprentað börnunum þetta með karlmenn og bjór (og þú ert þá líklega skrækróma konan með vínglasið, systir góð)

Reyndar vorum við aka frá þér þegar Elísabet reykti reykjurnar sínar. Ætlar þú að axla ábyrgð á því líka?

Ragnhildur Sverrisdóttir, 5.6.2007 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband