Útskrift

Útskriftarhátíð skólahópsins á leikskólanum Sólhlíð fer fram með pompi og prakt í dag. Athöfnin verður í Valskapellunni. Lindu Rauðudeildarstjóra finnst það auðvitað afskaplega ákjósanlegt og tekur ekkert tillit til þess að í hópi foreldra er fólk sem ólst upp í svart-hvítum Vesturbæ.

Systur eru mjög spenntar. Í gærkvöldi ætluðu þær ekki að koma kvöldmatnum niður, því þær þurftu að ræða fram og til baka um útskriftarhátíðina. Svo spruttu þær upp af og til og æfðu kynningu á einu þeirra fjögurra laga, sem hópurinn ætlar að syngja. "Næst syngjum við lagið Það er vor" sagði Margrét. Elísabet bætti við: "Hljóð og texti eftir Sossu". Ég reyndi að benda henni á að oftast væri sagt "lag og texti" en hún gleymdi því jafnóðum.

Í stað eftirréttar sungu þær öll lögin fjögur hástöfum. Margrét tók fram, að við Kata yrðum að hafa með okkur tissjú á útskriftarhátíðina, af því að allir foreldrar fengju tár í augun. Börnin þeirra syngju svo vel. Hún sagði að Linda hefði sagt þetta og allt sem Linda segir er hárrétt. Tissjúið verður tekið með.

Þessu næst teiknuðu þær systur og lituðu nokkrar myndir fyrir fósturnar, því þeim finnst alveg bráðnauðsynlegt að þær fái útskriftargjöf.

Eftir kvöldmat þvældust þær óskaplega hamingjusamar fyrir okkur í eldhúsinu. Kata gerði tvær marengs/rjóma/jarðarberja/bláberja/súkkulaði/karamellu sprengjur, sem fara á útskriftarveisluborðið. Ég fékk það hlutverk að búa til samlokur, "sem börn vilja" eins og Margrét orðaði það. Hún var alsæl þegar hún sá að ég hafði keypt einhvern súkkulaðismurning til að setja á brauð. Og þótt ég fyndi hvergi nokkurs staðar stjörnulaga mót til að skera út þessar súkkulaðisamlokur, þá kemst ég ekkert undan því að hafa brauðið stjörnulaga, þær systur voru nefnilega búnar að tilkynna vinum á leikskólanum að þannig yrðu samlokurnar þeirra. Og þessar stjörnusamlokur verða að vera brosandi. Föndur hjá mér í dag Wink

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Lífið er svo sannarlega dásamlegt hjá þessari fjölskyldu.  Takk fyrir pistil.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.6.2007 kl. 10:47

2 identicon

Ég rambaði óvart hér inn á síðuna fyrir nokkrum dögum síðan og er orðinn reglulegur lesandi.  Hef mjög gaman af sögunum um 6 ára systurnar.  Ég á sjálf "næstum"  6 ára bræður og er nýbúin að vera við útskriftarveislu.  Tek undir þetta með tissjúið - það þarf að nota það.  Gangi þér vel með stjörnulaga brosandi samlokurnar  og mundu að mömmur geta allt !

Birgitta Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 18:40

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hér er sko alltaf nóg af sögum af systrum, ég hef reynt að draga úr þeim, en þar sem þær systur eru skemmtilegastar eru allar líkur á framhaldi. Og takk fyrir góðar samlokuóskir, mér var fyrirgefið þótt stjörnulaga mótið kæmi aldrei í leitirnar og helmingurinn af samlokunum væri hjartalaga og hinn helmingurinn eins og blóm  Þær virtust allar renna jafn ljúflega niður.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 5.6.2007 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband