Grátið undir fögrum tónum

Útskriftin var yndisleg. Litlu krúttin gengu frá Sólhlíð að Valsheimilinu og þar var ótrúlegur hávaði þegar 22 börn töluðu hvert í kapp við annað, sum þurftu að skipta um föt en önnur æddu bara í hringi í stjórnlausri hamingju. Svo gengu þau í röð yfir í kapelluna, þar sem foreldrar og aðrir gestir biðu spenntir. Alma Karen frænka systranna var sérstakur heiðursgestur þeirra og þær voru afar stoltar að hafa hana á staðnum.

Allur hópurinn söng og þar sem Margrét hafði alveg sérstaklega bent okkur á að foreldrar færu gjarnan að gráta undir þeim fögru tónum gætti Kata þess að hafa tissjú í hendinni. Um leið og lagið var búið bar hún það upp að augum. Viðbrögðin létu ekki á sér standa, Margrét ljómaði öll, hnippti í systur sína og þær systur svo báðar í alla sem nálægt þeim stóðu og bentu stoltar á "grátandi" móður sína. Jamm, ekki allir söngvarar sem koma áhorfendum sínum til að gráta af hamingju Wink

Eftir sönginn hófst sjálf útskriftin, hvert einasta kríli var kallað upp, sett útskriftarpottlok á ameríska vísu á kollinn á þeim og þeim afhent skjal, þar sem fram kemur að þau hafi útskrifast úr námi í leikskólanum Sólhlíð með sóma. Ein rauð rós á mann kórónaði svo hátíðleikann. Dæs..... þetta er besti og krúttlegasti leikskóli í heimi.

Stressið ætlaði alveg að leggja sum börnin að velli, Margrét var að vísu brött allan tímann, en eftir að Eísabet hafði fengið hatt, skjal og rós var spennufallið svo mikið að hún fór að geispa stórum. Hún jafnaði sig þó um leið og hún komst í kökurnar. EInn herrann í hópnum kastaði allt í einu upp, en því var bjargað snarlega.

Þegar við komum heim var auðvitað pizzuveisla í tilefni dagsins, en þær systur voru enn svo spenntar að þær töluðu út í eitt og komu varla matnum niður. Þegar ég þóttist ætla að hafa vit fyrir hópnum og sagði við Kötu að kannski væri ekki ráð að æsa Elísabetu svona rétt fyrir svefninn (þá voru þær mæðgur í einhverju kitlikastinu) þá svaraði Elísabet að bragði: "Það má alveg æsa mig, ég er svo þreytt." Það var líka hárrétt, æsingurinn hélt ekki fyrir þeim vöku því þær sofnuðu um leið og þær lögðust út af.

Góður dagur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Ég er óttaleg grenjuskjóða á svona stundum. Mest hef ég þó grenjað þegar ég hef fylgt dætrum mínum í skólann í fyrsta skipti......

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 6.6.2007 kl. 07:47

2 identicon

Sælar - til hamningju með krúttin, þetta er eitt það skemmtilegasta sem til er.

Gangi þeim vel í skólanum - kíki á ykkur fljótlega

Kveðja Ásta Björk

Ásta Björk (IP-tala skráð) 6.6.2007 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband