Í vingjarnlegum fötum

Fólk getur verið í dulargervi þótt það sé vingjarnlegt. Það getur alveg verið í dulargervi þótt það sé ekki með grímu, það bara brosir og fer í vingjarnleg föt.

Þetta er niðurstaða viðræðna í bílnum í morgun á leið á leikskólann. Nógu sakleysislega byrjaði þetta, við vorum að ræða um Kvennahlaupið og í framhaldi af því spurði Elísabet hvort ég hefði einhvern tímann farið í fjallgöngu. Ég svaraði því játandi og sagði þeim svo dæmi af gönguferðum okkar Kötu. Ég sagði þeim t.d. að þegar við Kata hefðum verið nýbúnar að kynnast (og mörgum árum áður en þær fæddust, sem er auðvitað upphaf alls tímatals) hefðum við farið til Ísafjarðar að haustlagi. Þar hefðum við ekið upp á heiði, skilið bílinn eftir, gengið yfir heiðina og niður í Súkkulaðidal. Heimamenn kalla dalinn reyndar Engidal en Kristján afi minn ber ábyrgð á Súkkulaðidalsheitinu. Það er löng saga og verður ekki sögð hér í bili.

Nú, ég hélt áfram með söguna og lýsti því hvernig við Kata hefðum gengið niður á veg og húkkað þar far til að komast aftur að bílnum okkar. "Hvernig vissirðu að þetta var ekki steliþjófur?" spurði Elísabet. Ég vissi ekkert um hvað hún var að tala, en þá sagði hún að maður ætti aldrei að fara í bíl með ókunnugum, af því að það gæti verið einhver vondur steliþjófur. Ég útskýrði að við mamma hennar hefðum verið fullorðnar og tvær saman og þar að auki hefði ég kannast við manninn frá Ísafirði sem tók okkur upp í.

Auðvitað kallaði þetta á langar umræður um að maður eigi alls ekki að fara upp í bíl með ókunnugum. Þær systur voru með þetta alveg á hreinu: Það er ekkert að marka þótt fólk sé vingjarnlegt af því að það getur verið dulargervi þótt það sé engin gríma. Og svo getur fólk farið í vingjarnleg föt, sem gerir enn erfiðara að greina steliþjófana frá góða fólkinu.

Erfiður heimur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bára er auðvita bara frábær ljósmyndari og hefur náð stelpunum algjörlega "normal" frábærar myndir alveg eins og þær.

LOS

Linda Ósk (IP-tala skráð) 8.6.2007 kl. 00:15

2 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Það er þessi fína leið sem þarf að fara. Gera börnin ekki tortryggin gagnvart öllum ókunnugum en að þau reyni að gera sér grein fyrir hvað má og hvað ekki. Mín reynsla er sú að tala talsvert um þessa hluti og æfa börnin í sitúasjónum. Man t.d. þegar Bryndís mín kom með þetta snilldarsvar þegar við vorum að ræða að ef einhver segðist þekkja mömmu og hefði verið beðin að sækja hana. "Þá spyr ég bara: hvað heitir mamma mín"

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 8.6.2007 kl. 09:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband