Vandræðalegt...

að láta rafvirkjann yfirfara öll "biluðu" ljósin, sem virkuðu um leið og hann skipti um perur!

Ég hata halogen-ljós af innlifun. Ég var auðvitað búin að reyna  að skipta um perur í sumum þessara ljósa. Það gekk vægast sagt illa. Eitt ljósið var ég búin að rífa út úr veggnum og hélt svo bara á því í höndunum í heilu lagi, með víra eitthvert inn í vegg. Mér tókst aldrei að ná því í sundur til að skipta um þessa fj...... peru og stakk því bara aftur í gatið í veggnum. Rafvirkinn ýtti nett á glerið, sem þakkaði pent fyrir með því að hneigja sig fram og renna blíðlega úr falsi sínu, svo þurfti bara aðeins að tosa agnarlítið og þá gægðist peran niður úr ljósinu. Allt afar nett, pent og auðvelt, fyrir þá sem vita.

Ég var búin að læra áætlega á gamla kerfið, þetta með skrúfuðu perunum.

Mér er illa við svona framfarir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æi

Ragnhildur ekki prófa að skifta um krana

Haltu bara áfram að skrifa um perlurnar ykkar

kv

JFK

J Friðrik Kárason (IP-tala skráð) 8.6.2007 kl. 15:02

2 identicon

Stofnum félag gegn þessum ósóma. Gætum jafnvel boðið fram til alþingis.

Sjálfur er ég rafvirki. en dauður skal ég liggja fúinn og grafinn fyrr en ég set halogenperu í mín hús.

Kv Tommi

Tómas Axel Ragnarsson (IP-tala skráð) 9.6.2007 kl. 14:54

3 identicon

Hm, það vantar alveg greinilega í þig halogenið... Takk fyrir síðast! Barnið segir að systurnar séu "skemmtilegustu vinirnir sem hún heimsækir sem ekki eru með henni í skóla, alveg sérstaklega af því að það er hægt að leika svo mikið úti," sagði hún á leiðinni heim.

hke (IP-tala skráð) 10.6.2007 kl. 08:24

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég er ekkert á leiðinni að skipta um "krana" enda sjálf algjörlega "hooked" á þessum stelpum.

Ég er lukkuleg að rafvirki skuli vera þjáningabróðir minn í þessum halogen-hremmingum. Núna hef ég minnstar áhyggjur af því, ég er að reyna að stauta mig í gegnum 40 bls. leiðbeiningar með heita pottinum. Úff, af hverju er ekki hægt að setja vatn í, stilla á hitastig og setja á ON. Það væri pottur í lagi.

Og Helga, systur biðja mig að skila því til Hlédísar að bráðum verði hægt að leika einnþá meira úti, þegar potturinn og trampólínið er komið í gagnið

Ragnhildur Sverrisdóttir, 10.6.2007 kl. 14:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband