Ísland er stelpa

Fyrsta fótboltamedalían er í höfn hjá systrum! Laugardagurinn fór allur í Bónus-mótið og stelpurnar börðust af krafti í fjórum leikjum. Sigur í tveimur fyrstu, tap í tveimur síðari. Og medalíurnar eru enn um hálsinn á þeim.

Addý er grasekkja þessa dagana og kíkti í kvöldsnarl. Stelpurnar fengu þess vegna að vaka dálítið lengi frameftir. Guðmóðir hefur sérleyfi á slíku.

Þær vöknuðu óvenju seint á sunnudegi, kl. 8:30 (já, ég veit, þær eru óþolandi morgunhressar) og Addý kíkti aðeins á okkur aftur um 11-leytið, núna í kaffi og klatta. Um hádegið fóru stelpur út í garð og fóru ekki inn fyrir hússins dyr aftur fyrr en rúmlega átta um kvöldið. Þær voru að leika í kofanum sínum, bauka með dúkkur og svo hoppuðu þær á trampólíni í fjóra tíma samfleytt, svei mér þá! Ekki minnkaði fjörið þegar Alma Karen og Daníel komu í heimsókn. Knútur Kötubróðir fór út í búð og keyptu pylsur og brauð og við kveiktum upp í grillinu. Svona er nú hægt að eiga ljúfan dag þegar veðrið er gott.

Þegar þær systur voru tvær að hoppa sungu þær hástöfum Sautjánda-júní lagið Hæ, hó jibbíjei. Elísabet vildi syngja "það er komin sautjánda júní" og skýrði það svona fyrir systur sinni: "Sko, ég syng sautjánda, í staðinn fyrir sautjándi, af því að Ísland er stelpa."

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Er í krúttkasti og er að líða út af úr hlátri.  Þetta með 17. er náttúrulega bara snilld.  Auðvitað er Ísland stelpa.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.6.2007 kl. 00:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband