13.6.2007 | 09:28
Svala og vala
Elísabet vakti okkur í morgun með miklum gleðitíðindum, sem höfðu greinilega rifjast upp fyrir henni um leið og hún opnaði augun: "Ég fæ hvolp og ég fæ að hitta Ellen og Agnesi í Danmörku!"
Hvolpadraumurinn er gamall og nú hefur bæst við að hún vill gjarnan hitta frænkur sínar fljótlega aftur. Við vorum gestir þeirra í Svíþjóð um daginn og ræddum við foreldrana um að e.t.v. myndum við öll hittast í Kaupmannahöfn undir haustið. Nú er þetta alveg á hreinu, að sögn Elísabetar. Hún fór á sögusýninguna í Aðalstræti í gær og fékk þetta staðfest.
"Það var svala og maður kastaði henni og hún sagði nei eða já og hún sagði já þegar ég spurði hana hvort við gætum hitt Ellen og Agnesi og hvort ég mætti fá hvolp," sagði hún óðamála.
Svalan reyndist vera vala og Elísabet er sannfærð um óskeikulleika beinsins.
Þegar Margrét vaknaði og kom vappandi yfir í stóra rúm spurðum við hana hvort hún hefði spurt völuna að einhverju. Jú, hún hafði gert það.
"Ég spurði hana hvort ég mætti fá kettling, en hún sagði nei."
Margrét mín gefst aldrei upp baráttulaust og til að reyna að knýja fram betra svar spurði hún hvort hún mætti fá kisu. Valan sá við þessari gildru og sagði aftur nei.
"Það er út af því að ég var búin að spyrja um hvolp og hún sagði já og þá getum við ekki líka fengið kettling eða kisu," sagði Elísabet.
"En þú baðst bara fyrir þig, má ég þá ekki fá dýr?" spurði Margrét svekkt.
"Þegar ég segi ég þá meína ég við," svaraði systir hennar og Margrét tók það auðvitað gott og gilt.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.