Í Súkkulaðidal

Systur, sem hafa ferðast oft til útlanda og eiga m.a. ferð til Feneyja fyrir höndum síðar í sumar, eru alveg með það á hreinu hver sé uppáhalds áfangastaðurinn.

Súkkulaðidalur.

Þessi töfradalur á auðvitað engan sinn líka. Kristján móðurafi minn uppgötvaði hann þegar við systkinin vorum kríli. Hann er nálægt sumarbústaðnum okkar fyrir vestan. Súkkulaðidalur lætur ekki mikið yfir sér og raunar er súkkulaðisvæðið sjálft aðeins nokkrir þúfnakollar í Engidal. Þarna búa skemmtilegir dvergar, sem lauma súkkulaði út úr þúfunum sínum þegar krakkar koma í heimsókn.

Ég man vel eftir ferðunum með afa í Súkkulaðidal. Við Magga systir hlupum fram og til baka og leituðum á milli þúfna, en afi gekk hinn rólegasti um svæðið og hjálpaði okkur að leita. Ef okkur gekk illa að finna góðgætið stakk hann kannski upp á að við kíktum betur hjá þúfunum við stóra steininn, eða færum nær árbakkanum. Við tókum þessum ábendingum hans fagnandi, því við vissum af reynslu að hann var ótrúlega laginn að giska á hvar dvergarnir héldu sig helst.

Systurnar hafa farið til Ísafjarðar á hverju sumri, fyrst fjögurra mánaða í sjötugsafmæli Ömmu Deddu. Hún og Afi Ís eyða öllum sumrum á Ísafirði (pabbi ætti kannski fremur að bera sæmdarheitið Afi Suðusúkkulaði, því hann réttir þeim systrum gjarnan tvöfalda pakka, einn á mann, en Ís kom á undan og er vissulega þjálla). Systurnar bíða allan veturinn eftir að fá að heimsækja afa, ömmu og Bettý frænku á Grundinni, en reyndar gistum við alltaf hjá Möggu systur og Pétri á Kirkjubæ, sem er steinsnar frá Grund. Þau keyptu gamla íbúðarhúsið, sem Salla og Bogi áttu heima í þegar við vorum litlar stelpur, útbjuggu sumarleyfisparadís og eru afskaplega örlát á tíma sinn, húsaskjól og veitingar.

Kata er orðin forfallinn Ísafjarðaraðdáandi, enda kannski eins gott í þessari fjölskyldu. Hvorug okkar myndi vilja sleppa þessari árlegu heimsókn.

Á Ísafirði er alltaf nóg að gera fyrir litlar stelpur og mér finnst fátt skemmtilegra en að fara með þær á alla þá staði þar sem ég lék mér sem krakki. Ég var öll sumur hjá ömmu og afa á Grundinni, veiddi síli í Grundarlæknum, fór upp að Stigasteini og Gatasteini, jafnvel alla leið upp í Kirkjubólshvilftina og eyddi heilu dögunum á árabátnum. Stundum rerum við Magga alla leið út á Ísafjörð. Það var nú nokkuð strembin ferð á gamla, þunga trébátnum hans afa. En við vorum vanar róðrinum og fundum mjög til okkar þegar við bundum bátinn við gömlu bryggjuna fyrir neðan Neista.

Afi Kristján var mikill barnakarl og óþreytandi að fara í alls konar ferðir með okkur. Ég hefði áreiðanlega aldrei komið upp í Naustahvilft og niður í Bása sem smákrakki ef hann hefði ekki verið svona viljugur. Núna reyni ég að leika þetta allt saman eftir og stelpurnar mínar eru alveg jafn spenntar að komast vestur og ég var.

Súkkulaðidalur er toppurinn á tilverunni. Þær systur skilja ekki alveg hvers vegna ekki er hægt að fara þangað á hverjum degi, en þá væri nú ljóminn líklega fljótur að fara. Ein heimsókn í Súkkulaðidal á hverju sumri er hins vegar himnesk. Dvergarnir undirbúa heimsókn þeirra vel, eru gjarnan búnir að útbúa sérstaka nammiböggla, eða litla stjörnum skreytta plastpoka með alls konar góðgæti. Aðallega þó súkkulaði.

Og stelpur, sem ferðast um allan heim og eru á leiðinni til Feneyja, geta ekki beðið eftir að komast í Súkkulaðidalinn. Ég verð að viðurkenna að mér finnst yndislegt að sá staður skuli vera í mestu uppáhaldi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Takk fyrir það. Engar líkur á uppstyttu í bráð, því a) ég hef endalausar sögur af stelpum og b) ég er gamaldags ;)

Ragnhildur Sverrisdóttir, 14.6.2007 kl. 11:36

2 identicon

Jújú. Ekki síst þegar þú situr upp við dogg (og dottar)...

hke (IP-tala skráð) 14.6.2007 kl. 11:43

3 identicon

Ohh nú langar mig bara heim á Ísafjörð :)

Dagný Sverris (IP-tala skráð) 14.6.2007 kl. 12:22

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hehe, já þessi færsla var sérstaklega skrifuð til að vekja heimþrána hjá Ísfirðingum um allar trissur

Ragnhildur Sverrisdóttir, 14.6.2007 kl. 15:30

5 Smámynd: Forvitna blaðakonan

Þér hefur greinilega tekist það Ragnhildur því ég las þessa færslu fyrir minn ektamaka og hann talar ekki um annað núna rétt í þessu en segja sögur af fólki vestra og tala um næsta dal við Engidal þar sem við eigum okkar sælureit.

Forvitna blaðakonan, 16.6.2007 kl. 11:07

6 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Það var lagið! Ég verð að skella inn fljótlega einhverjum upprifjunum úr Neðstakaupstað, um 17. júní á túninu við sjúkrahúsið, marhnútaveiðar á bryggjunni, mjólkurbúðina og hnausþykka, keitusúta smjörið sem þar var á boðstólum,  búðina hans afa míns við Hafnarstræti og fleira og fleira. Ísfirðingar mega lesa og makar frá öðrum landshlutum verða bara að láta þetta yfir sig ganga

Ragnhildur Sverrisdóttir, 16.6.2007 kl. 19:58

7 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Úps, ég ætlaði nú að skrifa um súra skyrið, ekki smjörið. Til allrar hamingju var nú aldrei reynt að koma í mig keitusúru smjöri. OJ

Ragnhildur Sverrisdóttir, 17.6.2007 kl. 17:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband