Tilraunir

Systur vöknuðu óvenju snemma í morgun, rúmlega hálf sjö. Það kom nú ekki til af góðu, Magga er dálítið kvefuð og með hósta og vaknaði þess vegna. Elísabet var fljót að rjúka á fætur og elta hana yfir í stóra rúm. Þar kúrðu þær á meðan ég hafði til morgunmat og Kata fór í sturtu. Það kom auðvitað ekki til greina að Margrét yrði heima í dag þótt hún væri svona kvefuð, enda ætla leikskólakrakkar að rölta yfir á Klambratún eftir hádegið og sjá Brúðubílinn.

Við fórum snemma út, því ég og stelpurnar skutluðum Kötu í Háskólabíó þar sem hún ávarpaði 1300 norræna heimilislækna á þingi, í fjarveru ráðherrans. Systur spurðu mikið um erindi hennar í þetta hús, þar sem þær voru á Sinfóníutónleikum á dögunum og fóru einu sinni í bíó með Eddu frænku.  Kata útskýrði erindi sitt en það fór nú að mestu fyrir ofan garð og neðan hjá þeim systrum. Margrét sagði mér þó afskaplega stolt að mamma hennar ætlaði að tala á útlensku. Og hvað annað skiptir svosem máli?

Þessi morgun var ljúfur og léttur, en stundum byrja þær systur daginn á alls konar tilraunastarfsemi. Einn morguninn fyrir rúmu ári prófuðu þær sig áfram með að reka saman tungurnar. Fyrst lýsti Elísabet því yfir að munnbragðið hennar Margrétar væri svo gott, það væri eins og súkkulaðismjör. Margrét var ekki eins hrifin: „Munnbragðið hennar Elísabetar er eins og slef,” sagði hún, sannleikanum samkvæmt, en hélt samt tilraunum áfram.

Margrét er, eins og áður hefur komið fram, afskaplega klígjugjörn. Tilraunir höfðu því ekki staðið lengi þegar hún fór að kúgast og ekki bætti úr skák að Elísabet féll frá fyrri lýsingu á súkkulaðismjöri og sagði að það væru bólur á tungunni á Möggu.

Svo hlupu þær báðar fram á klósett, Elísabet á harðaspretti á undan að opna dyr og klósett, Margrét í keng á eftir að kúgast. Svo kúgaðist Margrét einu sinni yfir klósettinu, spýtti og þáði vatnssopa hjá Elísabetu, sem hafði miklar áhyggjur af heilsufari systur sinnar.

Lauk þar með þessum tungutilraunum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband