Að sorgmæðast

Þessi gæludýraumræða ætlar engan endi að taka á heimilinu. Núna hefjast allar vangaveltur um hvolpa á þeim fyrirvara að ég fari "í viðgerð" út af ofnæminu og þegar þeirri viðgerð verður lokið þá ætla þær að eignast hvolp sem verður alveg eins og Tumi litli hennar Ásthildar systur, eða eins og Blanda hennar Möggu systur, eða eins og Lucky þeirra Addýar og Báru, eða eins og Frosti hennar Siggu frænku...

Þar sem þessir hundar eru afskaplega misjafnir, allt frá litlum chihuahua upp í golden retriever, þá er auðvitað bráðnauðsynlegt að ræða allar aðstæður sem geta komið upp. Chihuahua eins og Tumi er alveg frábær, segja þær systur, af því að það er hægt að taka hann með sér út um allt, hann er svo lítill. En svo hafa stærri hundar ýmsa kosti, allt upp í að geta dregið sleða með tvíburasystrum, eins og Elísabet benti á, eða þá að þeir geta barist í gegnum snjóskafla með heitt kakó í lítilli tunnu um hálsinn, eins og Margrét benti á. Hún skoðar Andrés-blöðin sín ákaflega vel og er með þessi fræði á hreinu.

Ég er alveg hætt að tuða eitthvað um ofnæmið mitt, þær verða bara ergilegar og hreyta út úr sér að þær viti þetta ósköp vel, þær séu bara að tala um hvernig þetta verði þegar ég verð búin að fara í "viðgerð."

Það er líka algjör óþarfi að vera með einhverjar úrtölur, þær verða bara leiðar. Um daginn var afskaplega mikil fyrirferð í Elísabetu, hún og Kata voru eitthvað að ólmast og svo sagði Kata eitthvað á þá leið að ef Elísabet hætti þessu ekki yrði hún barasta að skila henni.

Elísabet varð skyndilega mjög alvarleg á svip og sagði: "Mamma, ekki segja svona! Ég veit að þú ert að grínast, en samt sorgmæðist ég þegar þú talar svona."

Og hver vill að barnið sitt "sorgmæðist?"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Silky terrier hundar valda sjaldan ofnæmi auk þess fara þeir ekki úr hárum sem er mikill kostur.

TG (IP-tala skráð) 16.6.2007 kl. 14:01

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Silky terrier verður skoðaður vel eftir þessar upplýsingar

Ragnhildur Sverrisdóttir, 16.6.2007 kl. 19:43

3 identicon

Veit fyrir víst að Bichon Frise veldur ekki ofnæmi. Frænka mín sem er mikil ofnæmiskona lét á það reyna að fá sér þessa tegund og er alsæl. Fer ekki úr hárum og veldur ekki ofnæmi. Hundurinn er þvílíkur gleðigjafi og mikil kelirófa.

http://www.hvuttar.net/?h=3432&g=115

 Með góðri kveðju,

kbh

KBH (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 00:19

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég á vinkonu sem á Bichon Frise, en hef aldrei komið heim til hennar. Nú er best að ég láti slag standa, fari í heimsókn og nuddi Dreka litla vandlega framan í mig. Vonandi hefur þú rétt fyrir þér, annars fæ ég heiftarlegt ofnæmiskast, með astma og tilheyrandi, fyrir utan hnerra og táraflóð 

En eitthvað verð ég að gera, það líður ekki dagur án þess að ég sé spurð hvenær ég ætli í viðgerð.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 18.6.2007 kl. 15:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband