16.6.2007 | 19:54
Kvennahlaup
Við mæðgur skelltum okkur allar í Kvennahlaupið í Garðabæ. Við fórum nú bara 2 kílómetra og hlupum engin ósköp, en þetta var samt mikil og skemmtileg upplifun. Þær systur fengu medalíu í annað skipti á viku, svo söfnunin gengur vel. Ég fékk mína aðra á ævinni og nú eru raunar 30 ár síðan ég fékk þá fyrri, sem var fyrir kappróður á Sjómannadaginn í Hafnarfirði (lööööng saga). Sú er reyndar glötuð fyrir margt löngu. Kata á svo margar medalíur eftir handboltann að hún hélt reisn sinni og ró þegar þessi var hengd um hálsinn á henni.
Stelpurnar hittu vini og kunningja í hlaupinu, þarna voru t.d. fótboltastelpurnar Halldóra og Vala, dætur Önnu Gunnhildar. Þær voru duglegri í upphitun en við. Og svo vorum við varla lagðar af stað þegar við rákumst á Brynju vinkonu þeirra af leikskólanum. Þar urðu miklir fagnaðarfundir. Steinunn mamma Brynju sagði að hún hefði æft sig af kappi, m.a. hlaupið fjóra hringi heima í garði "án þess að stoppa og fá mér hundasúru" eins og sú litla sagði. Já, maður lætur nú ekki glepjast af slíku þegar Kvennahlaupið er framundan.
Þegar við vorum komnar í mark hittum við líka Áslaugu leikskólavinkonu, en hún var nú kúl á þessu, enda að hlaupa í annað sinn.
Síðdegis skutluðum við stelpunum okkar í pössun til Addýar og Báru. Sú ferð var nokkuð löng, því þær eru í sumarbústaðnum sínum í Skorradal. Klukkutíma rúntur og systur steinsofnuðu á leiðinni. Þær fóru líka seint að sofa í gær, enda fullt af krökkum í heimsókn, Greipur, Mikki og Kata og Lilla, Alma og Daníel. En nú eru systurnar úthvíldar fyrir veiðiskap með guðmæðrum sínum, að ógleymdum hinum ómissandi grilluðu pylsum á pallinum við sumarhöllina.
Góður dagur.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sú yngri hér á bæ talaði mikið alla vikuna um kvennahlaupið og hvort við færum ekki örugglega? Jú jú -vitaskuld færum við ef hana langaði. Og mamma mín ætlaði með. Þegar við svo vorum að gera okkur klárar í gær hringir vinkona þeirra stuttu og hún spyr hvort hún megi ekki fara til hennar - jú jú það var sjáfsagt en ætlaði hún ekki í kvennahlaupið? Þarf ég að fara?
Endaði með því að ég skellti mér i kaffi til mömmu minnar og ekkert varð af kvennahlaupinu þetta árið.
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 17.6.2007 kl. 13:24
Nú, er engin medalíusöfnun í gangi? Mér sýndist það helsti hvatinn hjá stelpunum mínum, skítt með hreyfingu, samheldni, samveru með mæðrunum og allt hitt. Gullið dró þær í Garðabæinn. Þýðir þetta að uppeldið hefur heppnast, eða gjörsamlega klúðrast? Það kemur líklega í ljós síðar.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 17.6.2007 kl. 13:30
Medalíusöfnunin er í hávegum höfð í Grafarholtinu. Mín var að fá sína fjórðu (sem er töluvert afrek þar sem hún er ekki nema þriggja ára). Stóri bróðir á hins vegar bara eina, (er fremur fúll yfir því) því hann hefur ekki nennt með fyrr en núna. Sýnist stefna í samkeppni þarna. Kveðjur,
Sigríður Jósefsdóttir, 18.6.2007 kl. 12:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.