Samanburður

Margrét var alveg uppgefin að kvöldi þjóðhátíðardags og steinsofnaði fyrir kvöldmat. Þegar hún rumskaði við að mamma hennar var að hátta hana fyrir nóttina varð hún hin fúlasta, af því að hún hafði misst af Addý og Báru sem kíktu í kvöldmat. Það hafði greinilega ekki verið nóg að gista hjá þeim í Skorradal.

Margrét var viss um að hún hefði misst af miklu fjöri. "Fóru Addý og Bára á trampólínið?" spurði hún, en Kata svaraði að það hefðu þær ekki gert.

"Gott," sagði hún.

Og svo hélt hún áfram: "Fékk Elísabet eftirrétt?", en Kata sagði að það hefði ekki verið boðið upp á neinn eftirrétt. "Bað hún um eftirrétt?" þurfti hún þá að vita og enn gat Kata svarað að svo hefði ekki verið.

Margrét virtist sátt við þetta.

Auðvitað þýddi þessi kvöldmatarlúr að henni gekk erfiðlega að sofna um kvöldið. Elísabet var löngu sofnuð en Margrét enn á vappi þegar nágrannarnir á nr. 2 bönkuðu upp á, nýkomnir frá útlandinu.

Þegar Elísabet frétti af þessari heimsókn í morgun byrjuðu sams konar yfirheyrslur og hjá systur hennar í gær. "Fór Marta María á trampólínið?" og "Voru Margrét og Marta María að leika?"

Og þegar hún frétti að Margrét hefði fengið frostpinna í gærkvöldi spurði hún hvort hún mætti fá í dag -og Margrét ekki!

Við mömmurnar tökum nú svona samanburðarrannsóknum af fálæti, enda er þetta hvimleitt. Þær systur gera sér reyndar grein fyrir því og spyrja yfirleitt varfærnislega og hikandi um allar þær lífsins listisemdir sem önnur þeirra fær að njóta á meðan hin hrýtur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Samaburðarrannsóknir af þessu tagi þurfa ekki systkini til. Ef þau er ekki fyrir hendi er notast við frændsystkini, bekkjarsystkini, börn nágranna og börn sem eiga leið um hverfið. Lífið er fullt af lúxusóréttlæti, sýnist manni.

hke (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 12:52

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Rétt, rétt, ég man sosum mörg dæmin um misskiptinguna á leikskólanum, sumir eiga yngri systkini, önnur eldri, aðrir hund eða kött...

Ragnhildur Sverrisdóttir, 18.6.2007 kl. 15:21

3 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Það var mikill metingur hjá mínum þó tvö ár séu á milli. Get rétt hugsað mér hvernig þetta er hjá systrum á sama aldri! Þetta gengur yfir en er ægilega leiðinlegt meðan á því stendur...Mér finnst aldrei neitt mál þegar þær bera sig saman við önnur börn í öðrum fjölskyldum. Gera reyndar lítið sem ekkert af því. Vita sem er að það fær ekki hljómgrunn hjá okkur foreldrum þeirra

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 18.6.2007 kl. 15:47

4 identicon

Einmitt. Og óréttlætið sem barnið verður fyrir er þetta; að eiga ekki síma! Ekki i-pod! Mega ekki sitja frammí (þótt hana vanti ca. 18 kíló í löglegt umfang), fá ekki að vera ein úti á kvöldin, til tíu, koma með sætabrauð í nesti í skólann og ... og ... En, maður ansar þessu auðvitað ekki.

hke (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 20:42

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hehe, það er greinilegt að blessuð börnin mæta afskaplega takmörkuðum skilningi heima fyrir þegar þau barma sér undan heiftarlegri misskiptingu gæðanna

Ragnhildur Sverrisdóttir, 19.6.2007 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband