Styrkleiki og laun

Sex ára systur fóru í bleikum fötum í leikskólann, enda 19. júní. Ég verð að viðurkenna að það er nú engin bylting í klæðaburði hjá þeim, því þótt bleika tímabilinu sé að ljúka þá eiga þær enn ansi margar flíkur í þeim lit. Sjálf telst ég seint til bleikklæddra, en tókst þó, að áeggjan dætranna, að finna einn bleikan bol í tilefni dagsins. Og Kata gat líka skreytt sig bleiku, svo heiðri fjölskyldunnar er bjargað.

Það er gaman að fylgjast með pælingum þeirra systra um jafnréttismál. Í morgun voru þær að skoða blöðin og í tilefni einhverra spurninga þeirra fór Kata að útskýra fyrir þeim launamun kynjanna. Systur voru auðvitað uppfullar af heilagri vandlætingu þegar þær uppgötvuðu að svona hefði þetta ekki bara verið í gamla daga, heldur væri enn. Þær veltu fyrir sér hvort þetta væri svona alls staðar, en Elísabet kvað allt í einu upp úr með að svona væri þetta ábyggilega hjá mér, en ekki hjá Kötu mömmu hennar af því að hún væri alltaf stjóri í vinnunni sinni. En ég hefði aldrei verið stjóri og þá fengi ég ábyggilega ekki sama pening og karlar.

Bragð er að þá barnið finnur. Mér svelgdist á morgunkaffinu.

Jafnréttisumræða þeirra systra snýst þó fyrst og fremst um að rengja strákana á leikskólanum. Þeir halda því fram að strákar séu sterkari en stelpur. Það finnst stelpunum alveg ægilegt að heyra og heiftarlegt óréttlæti að fá þetta framan í sig dag eftir dag. Við höfum nú bent þeim á að strákar og karlar séu vissulega líkamlega sterkari en konur og stelpur, en það hafi hins vegar ekkert með almenna mannkosti að gera. Þær skilja þetta þegar um er rætt og fallast alltaf á að þetta sé hárrétt, strákarnir séu sterkari, en það eitt þýði ekki að þeir séu "betri". En svo líða nokkrir dagar og þá koma þær systur aftur heim af leikskólanum, andstuttar af hneykslun af því að einhver drengurinn slengdi fram þeirri voðalegu fullyrðingu að strákar væru sterkari en stelpur Blush

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Bloggið þitt er yndislegt og ég elska að lesa nýjar færslur frá þér um systurnar öflugu og skemmtilegu.  Ég skil að þér hafi svelgst á kaffinu í morgun.  Takk fyrir mig og gleðilega hátíð

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.6.2007 kl. 12:31

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Takk sömuleiðis! Megi bleikur bjarmi leika um þennan dag og alla komandi

Ragnhildur Sverrisdóttir, 19.6.2007 kl. 13:20

3 identicon

Tek undir með Jennýju, gaman að fylgjast með ykkur mæðgum í gegnum þetta skemmtilega blogg.  Kíki reglulega hingað inn þó svo ég þekki ykkur ekki neitt .  Eigið gleðilegan dag.

Sigrún Pálsd. (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 13:26

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Takk fyrir góðar óskir, mér finnst ánægjulegt að fólk finnist gaman að lesa þetta, þótt þetta séu bara pælingar um daginn og veginn hér í Logalandinu. Og til hamingju með daginn. Berjumst til sigurs, konur!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 19.6.2007 kl. 15:18

5 identicon

ehemm.... er frúin nokkuð til í að láta mynda sig... í bleiku?

Urður (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 16:33

6 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Nei, hættu nú alveg, frú Urr. Ég myndi ekki festast á filmu í bleiku!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 19.6.2007 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband