Holy smoke

Systur hafa mikinn áhuga á dagblöðum og vilja gjarnan lesa þau með mæðrum sínum á morgnana. Þær láta sér ekki nægja að skoða barnaefni, heldur vilja fá skýringar á öllum myndum og auglýsingum. Í morgun vildi Elísabet fá að vita allt um dánartilkynningar. Ég útskýrði fyrir henni hvernig þær virkuðu, t.d. skrifuðu maki og börn undir svona tilkynningu. "En ef börnin kunna ekki að skrifa?" spurði hún þá áhyggjufull, en róaðist þegar ég sagði henni að Mogginn sæi um nánari útfærslur á tilkynningunum.

Margrét stúderaði lengi heilsíðuauglýsingu, þar sem besta og ódýrasta kjötið var boðið til sölu. Og spurði margs um hvers vegna væri verið að sýna allt þetta kjöt. Kata útskýrði fyrir henni auglýsingar, að þessi auglýsandi segði fólki að hann væri með gott kjöt, sem væri samt ódýrara en aðrir byðu. Auglýsingar væru nefnilega til að fá fólk til að kaupa vöru.

"Ef ég væri fréttamaður eða stjóri myndi ég ekki setja myndir af fólki að reykja í blöðin," tilkynnti hún þá allt í einu.

-og af hverju ekki?

"Það er ógeðslegt að reykja. Og ef það er svoleiðis mynd þá getur fólk haldið að það sé gott að reykja."

Og þar með er ljóst að barnið áttar sig líka á áhrifamætti óbeinna auglýsinga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband