Jarðarber jörðuð

Landsbankamótið var á laugardaginn og 6 ára fótboltastelpur voru alsælar. Þær voru að vísu líka örmagna, því vellirnir voru ansi stórir fyrir skrefstutt kríli. Sólin skein allan tímann, en þarna í Mosfellsbænum var stífur vindur og stundum skall ægilegt moldrok á öllum, enda er verið að grafa allt í kringum Vesturlandsveginn og í þurru veðri tollir jarðvegurinn ekkert á sínum stað í verstu hryðjunum. Systrum var slétt sama, enda fengu þær hvor sína medalíuna, þá þriðju á jafn mörgum vikum, svei mér þá.

Blíðan var enn meiri hérna heima í Fossvoginum seinni part dagsins, a.m.k. var ekkert rok að ergja okkur. Trampólín, kofi, heitur pottur og pulsur, Alma Karen frænka í heimsókn og ekki hægt að biðja almættið um meira.

Í dag var sama bongóblíðan, við borðuðum brunch á pallinum og svo tók við sama rútínan, trampólín, kofi, heitur pottur. Síðdegis hjóluðum við mæðgur allar niður í Mörk, til að kaupa kryddjurtir, sumarblóm og blómapotta. Systur vissu alveg erindið, en þegar við vorum komnar á staðinn sneri Margrét sér að mér og sagði: "Þetta er miklu leiðinlegra en ég hélt." Ég sagði henni að við værum nú bara komnar til að kaupa nokkra hluti og þetta ætti sosum ekki að vera neitt sérlega skemmtilegt, en þá sagði hún, frekar pirruð: "Ég vissi alveg að þetta væri mjög leiðinlegt, en þetta er ennþá leiðinlegra en ég hélt!"

Hún var nú búin að taka gleði sína í kvöldmatnum og þær systur umluðu af hamingju á meðan þær borðuðu uppáhalds eftirréttinn, jarðarber með sykri og rjóma. Margrét spurði um jarðarber, hver hefði "byrjað á þeim" og vonaði að það væru Ítalir (hún bindur miklar vonir við væntanlega Ítalíuferð fjölskyldunnar og vísar oft til þess að Ítalir hafi "byrjað á" pizzum og rjómaís.) Eftir fjörugar umræður um jarðarber sagði Margrét: "Eru jarðarberin jörðuð þegar þau deyja?"

Henni og systur hennar fannst þetta sjúklega fyndið og hlógu svo rjóminn frussaðist út úr þeim. Stuttu síðar ætlaði ég að bæta um betur með einhverjum lömuðum brandara um berjartínslu og jarðarfarir. Þá sló mikilli og vandræðalegri þögn á gengið. Svo hallaði Elísabet sér að mér og sagði, mjög alvarleg: "Þetta var ekki neitt fyndið hjá þér." Það komment hennar kallaði hins vegar á nýtt hláturskast og rjómafruss.

Á morgun eru prinsessurnar of uppteknar til að fara á leikskólann, þær eru að fara til tannlæknis klukkan ellefu, í klippingu klukkan eitt og svo á fótboltaæfingu klukkan fjögur. Þær sjá reyndar fram á að ná útiverunni á leikskólanum áður en þær fara í fótboltann. Og nú eru þær farnar að gæla við að komast í fótboltaskóla á meðan leikskólinn er lokaður. Mér sýnist allt stefna í að þetta sumar, kannski næsta, verði hið síðasta sem fjölskyldan kemst til útlanda. Við verðum líklega að verða okkur úti um fellihýsi og eyða öllum sumrum hér eftir í hin aðskiljanlegustu fótboltamót um allt land.

Kveðja

Soccer Mom


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Mig langaði alltaf að vera svona fótboltamamma en stelpurnar fundi sig ekki í þeim bolta. Það var alltaf svo rosalega gaman hjá grönnum okkar í næsta húsi þegar þau hafa verið með drengjunum sínum á hinum og þessum mótum. Enda Þróttarar með afbrigðum skemmtilegt og kátt fólk.

Sú eldri hefur ekki fundið sig í íþróttum en sú yngri æfir bæði karate og handbolta. Það var gaman að koma á handboltaleiki í vetur og geta látið til sín taka á hliðarlínunni. Ég hef í 5 ára farið á hin ýmsu karate mót og þar er allt svo rólegt; foreldrar sitja með nesti og glugga í helgarblöðin enda taka þessi mót yfirleitt 5 - 6 tíma og byrja snemma á sunnudagsmorgnum 

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 25.6.2007 kl. 10:39

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ragnhildur bara nokkur orð frá mér, gaman að heyra að stelpurnar þínar eru svona hressar í fótboltanum, þær voru nú svo litlar er ég sá þær á Ísafirði í tvígang á þeirra fyrsta aldursári.
við þekkjum hvor aðra ekki neitt, en þú komst að versla föt á þær á Ísafirði og ég afgreiddi þig.
Fór að kjá í snúllurnar þínar, mér þykja börn bara toppurinn á tilverunni, líka vegna þess að ég á barnabörn sem eru eineggja tvíburar því miður þá eru þær ekki íþrótta-sinnaðar, en ef þær byggju í U.S.A. þá yrðu þær gerðar að heiðursfélögum í nýstofnuðu nördafélagi þar.
þetta með brandarana, þú getur bókað það nú þegar að þeim finnst við  ekki mjög frásagnagóðar og það batnar ekki með árunum. Heyrðu þú getur gleymt því að komast eitthvað annað en í fellihýsi meðan þær vilja hafa þig með,  á öll mótin sem þær fara á.
                         Gangi ykkur allt í haginn.
p.s. Þú býrð nú á einum besta stað í bænum, pápi minn átti hús í Bjarmalandinu það var aldrei rok þar.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.6.2007 kl. 15:26

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég hef svo sannarlega ekkert á móti því að eyða næstu sumrum á hinum og þessum íþróttamótum, ég hef þegar áttað mig á hve hratt tíminn flýgur... Helgardögum er ekki betur varið í eitthvað annað.

Guðrún Emilía, ég man vel eftir þessari innkaupaferð, getur ekki verið að hún Bettý móðursystir mín hafi verið með í för líka? (Elísabet er reyndar skírð í höfuðið á henni). Við förum vestur á hverju einasta sumri, þær voru fjögurra mánaða þegar þær fóru fyrst, nýfluttar frá Ameríku til að mæta í sjötugsafmæli mömmu. Og hún verður sem sagt 76 í júlí, svo það er klárt hvar við verðum þá

Og eitt enn: Vissulega bý ég á einu besta stað í bænum og takk kærlega fyrir að nefna það hér undir athugasemd Kristínar Bjargar, hún heldur nefnilega að Vogarnir séu bestir

Ragnhildur Sverrisdóttir, 25.6.2007 kl. 23:39

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Blessuð Ragnhildur litlu orðheppnu og bráðskýru snúllurnar þínar voru bara pínulitlar þegar ég sá þær fyrst og Bettý var með í för þetta passar allt. Vissulega býrðu á besta stað í bænum, en svona til huggunar fyrir Kristínu Björgu, var: er ég var minni röraport  við langholtsveg stórt og mikið og var það afar vinsælt til að leika sér í, amma og afi bjuggu nefnilega á Nökkvavog  þá voru vogarnir  vinsælir, en það var þegar ég var yngri. þá gat maður líka labbað í bænum og lá við að allir þektu alla. Góða ferð vestur og  ég veit að þið hafið það skemmtilegt saman fjölskyldan. Gott hjá þér að leifa þeim ekki að ritskoða bloggið þitt áður en þú sendir það
Þú mundir missa sjálfsálitið með tímanum

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.6.2007 kl. 13:34

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Já, rétt, ég á ekkert að vera að hallmæla Vogunum hennar Kristínar, þar er áreiðanlega yndislegt að vera.

Og ritskoðun mun aldrei vera leyfð á þessu bloggi!! Eða a.m.k. ekki fyrr en litlu ritskoðararnir hætta dómhörkunni

Ragnhildur Sverrisdóttir, 26.6.2007 kl. 16:17

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þetta er það sama, skoðanafrelsi og hverfafrelsi eða þannig, en ef ég yrði nauðsynlega að fitja í bæinn þá væri um þrjá staði að velja Fossvogurinn, flatirnar í Garðabæ eða gamli bærinn í Hafnafirði, en ég vona að ég þurfi aldrei að búa í R. þó ég sé fædd þar og uppalin.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.6.2007 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband