Varst þú að keyra?

Ekki varð þessi dagur að Extreme Makeover hjá þeim systrum eins og ég hélt, því ég hafði auðvitað litið vitlaust á dagatalið, klippingin var vissulega í dag, en tannlæknirinn á morgun.

Elísabet vaknaði með slæma sýkingu í öðru auga, svo við fórum til Þóru augnlæknis. Á biðstofunni lásum við bunka af Andrésblöðum og þær systur báðu mig alltaf að lesa brandarana á baksíðunni. En skildu þá sjaldnast. Þær skildu að vísu brandarann "Hvað er rautt og hvítt og fer upp og niður?" (Svar: Jólasveinn í lyftu) en fannst hann bara ósköp bjánalegur, eða eins og Elísabet sagði: "Var hann kannski á táslunum? Hann hlýtur að hafa verið á táslunum ef hann var bara hvítur og rauður, af því að jólasveinar eru alltaf í svörtum stígvélum? Af hverju var hann á táslunum í lyftu?" Fólkið í biðstofunni beið spennt eftir svari mínu, en ég greip næsta blað og reyndi að þvinga inn í þær skilning á þeim vondu bröndurum sem þar voru.

Þær voru allnokkuð lukkulegar að losna við leikskólann í allan dag, því þótt þetta sé besti leikskóli í heimi eru þær orðnar pínulítið leiðar, þurfa að fara að komast í frí. Þær skelltu sér á fótboltaæfingu síðdegis og voru svo að bauka með okkur Kötu í garðinum. Kata plantaði sumarblómum í potta og ég setti saman hillu í kofann þeirra. Svo röðuðu þær glösum, diskum og áhöldum í hilluna af mikilli natni.

Auðvitað skelltum við nokkrum spjótum á grillið og borðuðum úti. Kata lenti í einhverjum vandræðum, missti niður sósu eða eitthvað álíka og ég notaði tækifærið til að minna þær á að hún hefði líka hellt niður djús í gær og vatni fyrir nokkrum dögum. Og svo spurði ég: "Finnst ykkur sanngjarnt að kalla mig Klaufamömmuna ykkar, eins og þið gerið alltaf?"

Það leið varla sekúnda þar til Margrét spurði á móti: "Varst þú að keyra bílinn þegar þið festust úti í ánni?"

Ég var gjörsamlega kjaftstopp, þarna var barnið að vísa í óhapp sem gerðist löngu áður en þær fæddust og ég hef nú ekki mikið haldið á lofti. Einhvern tímann hafa þær heyrt söguna og Margrét gróf hana upp á hárréttu augnabliki.

Jú, ég var að keyra þegar við ókum út í þennan árfjanda. "Þá ert þú klaufamamman okkar" sagði Margrét hin rólegasta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband