Heilbrigði

Á leiðinni heim af leikskóla sagði ég stelpunum að mamma þeirra væri að ganga gegn umferðarslysum. Ég skýrði tilganginn með göngunni, að þetta væri hugmynd hjúkrunarfræðinga og við ræddum fram og til baka um alvarleika umferðarslysa og að allir yrðu að fara varlega.

Margrét lýsti því yfir að ef hún væri fullorðin myndi hún sko fara í þessa göngu. Hún væri bara dálítið þreytt eftir leikskólann.

Ég sagði að við skyldum bara fara heim og fara í vatnsbyssuslag með nýju vatnsbyssunum.

"Já, heilbrigðisvatnsbyssuslag," sagði Elísabet og bætti svo við að heilbrigði þýddi að manni liði alltaf vel.

"Eins og þegar maður er í vatnsbyssuslag!" sagði Margrét og þá var hringnum lokað.

Margrét ætti alla vega að vera í þokkalegri sæluvímu núna, hún er búin að vera í hláturskasti síðasta hálftímann í vatnsbyssuleik við mig og hamingja hennar var fullkomnuð þegar ég var orðin blaut frá hvirfli til ilja.

Elísabet kaus að láta okkur tvær um hamaganginn en hellti á meðan upp á kaffi fyrir mig. Það líkist að vísu ótrúlega vatni með vænum skammt af mold út í.

Heilbrigði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

sætt - krúttlegt.

Edda Agnarsdóttir, 26.6.2007 kl. 22:37

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2007 kl. 22:45

3 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Flott saga takk

Myndi flokka hana undir geðheilbrigðismál.

Fer á morgun og fjárfesti í vatnsbyssum

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 26.6.2007 kl. 23:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband