27.6.2007 | 09:48
Sjóræningjadagur
Í dag er sjóræningjadagur á Sólhlíð, besta leikskóla í heimi.
Nú mætti ætla að einn svona dagur væri einmitt það, bara einn dagur. Ónei, svo einfalt er málið ekki. Undirbúningur fyrir þennan eina dag hefur staðið lengi, alls konar samningaviðræður um klæðaburð og vopnaburð.
Systur fóru í leikfangabúð í gær og völdu plastsverð. Þar fengust alls konar bjúgsverð, afskaplega sjónræningjaleg, en systur höfðu sett það skilyrði að sverðið þeirra væri í slíðri og slíðrið átti að vera hægt að festa á belti. Í búðinni leist þeim báðum best á fremur stutt sverð í slíðri. Afgreiðslukonan sagðist bara eiga eitt slíkt eftir. Þær systur veltu vöngum yfir þessu skamma stund, en ákváðu svo báðar að taka frekar lengra sverð í slíðri. Þær rífast afar sjaldan um svona hluti, komast bara fljótt og vel að samkomulagi. Og ef báðar langar í eitthvað, þá leggjast þær gjarnan í alls konar flókna samninga. Nú, eða sleppa því bara að velta því meira fyrir sér og snúa sér að næsta kosti.
Báðar vildu þær systur vera í kjól á sjóræningjadaginn, enda alveg klárt að þær ætluðu að vera sjóræningjastelpur. Mömmur bentu á röndótta kjóla, en systrum fannst miklu flottara að vera í bleiku náttkjólunum sínum. Gott og vel, ekki hvarflar að manni að deila við sjóræningjastelpur sem girtar eru sverðum.
Fyrir háttinn í gærkvöldi dunduðum við okkur við að klippa neðan af gömlum, svörtum buxum. Elísabet fór í þær innan undir náttkjólinn, en Margrét lofaði að fara í þær í útivistinni, ef kalt væri í veðri. Hún fór hins vegar röndótta "langa" sokka, eins og hnésokkar heita á þeim bænum.
Sjóræningjastelpur festa sverðslíðrið sitt ekki á litlaust og ljótt leðurbelti, heldur glitrandi palléttuband og algjörlega, gjörsamlega óhjákvæmilegt að binda það um mittið með stórri slaufu. Svo skelltu þær klútum á höfuðið og þeir voru nú bara nokkuð sjóræningjalegir, svei mér þá.
Undanfarna daga hafa þær skeggrætt um hvort þær ættu að vera með lepp fyrir auga. Þær hafa prófað það og finnst óþægilegt, en það er óneitanlega afskaplega sjóræningjalegt. Í fyrra málaði ég á þær lepp og það kom ágætlega út, en núna finnst þeim það heldur billeg lausn. Í morgun voru þær enn að velta þessu fyrir sér, en þegar þær voru komnar í kjóla og búnar að punta sig, þá voru báðar sammála um að leppur, hvort heldur væri raunverulegur eða málaður, væri algjört stílbrot.
Loks ákváðu þær að taka litlar spiladósir, sem eru eins og litlar kistur í laginu, og fylla þær af gulli og gersemum. Plastfestar, hringir og perlur hurfu þar niður, sem og einn og einn "gullmoli" frá fyrri sjóræningjadögum. Á besta leikskóla í heimi er nefnilega til siðs að fela fjölmarga gullmola um alla leiðskólalóð og svo gægjast litlir sjóræningjar bak við runna og sigta sandinn í sankassanum þar til hver moli er fundinn.
Þegar systur komu á leikskólann, í bleiku náttkjólunum, girtar palléttuböndum, með sverð, klút um höfuðið og stórar perlufestar um hálsinn spurði Linda deildarstjóri hvort þær ætluðu að grafa þennan fjársjóð í litlu kistunum sem þær tóku með sér. Það kom nú aðeins á þær systur og greinilegt að það hafði ekki hvarflað af þeim að setja alla þessa dýrgripi í dimma holu. Þær láta sér áreiðanlega nægja að leita eftir gullmolum.
Það stefnir í góðan dag. Ó, já, og eitt enn: Rósa uppáhald, sem hætti á leikskólanum til að verða verkalýðsforingi, ætlar víst að mæta. Þar með er sjóræningjaskipið Sólhlíð fullmannað.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú verður nú að afsaka, en mér finnast frásagnir þínar af stelpunum alveg frábærar.
með sig.
Þær mynna mig á hvernig mínar voru og eru reyndar enn, en í alvöru þær hafa nú ekki verið mjög sjóræningjalegar í bleiku náttkjólunum með pallíettubelti um sig miðja og alla múnderinguna þar fyrir utan, en örugglega yfir sig stoltar og
til hamingju með þær kæru mæður.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.6.2007 kl. 11:46
Takk, takk
Nei, þær myndu nú seint teljast "sjóræningjalegar" á einhvern Hollywood mælikvarða, hvað þá ógnvekjandi, en þær voru mjög ánægðar með útkomuna.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 27.6.2007 kl. 11:56
Mætti að sjálfsögðu á sjóræningjadaginn, þar voru sko heilu pokarnir af gulli, gersemum og flottustu sjóræningjum í heimi bæði stórum (starfsfólkið) og litlum. Gaman að geta lesið af djúpum pælingum þeirra systra um lífið og tilveruna, þær eru náttúrulega bara frábærar. Sendi þeim stórt knús
Rósa (IP-tala skráð) 27.6.2007 kl. 18:40
Blessuð!
Þær voru alsælar, með alla vasa fulla af gulli
Skila knúsinu til þeirra.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 27.6.2007 kl. 19:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.