28.6.2007 | 23:48
Verst í heimi
Þegar stelpur komu heim fóru þær að sjálfsögðu beint út í garð, enda önnur eins paradís vandfundin í svona veðri. Kata hoppaði með þeim á trampólíninu á meðan ég grillaði og eftir matinn fóru þær aðeins í pottinn. Svo borðuðu þær yfir sig af jarðarberjum, enn eina ferðina.
Eftir desertinn kúrðum við á sólbekkjum og vorum eitthvað að fíflast. Margrét var með einhverjar fyndnar hótanir við mig, sem ég man nú ekki af hverju stöfuðu. Þá spurði ég hana hvað henni þætti verst í heimi. Hún neitaði að segja mér það, enda áttaði hún sig strax á að ég ætlaði að hóta henni einhverri slíkri skelfingu.
Kata sagðist alveg vita hvað Margréti þætti verst í heimi: Hálftugginn matur í munni. Það fór greinilegur hrollur um Margréti klígjugjörnu og hún þurfti töluvert knús og kitl áður en hún var búin að jafna sig á ósköpunum. Reyndar fauk aðeins í hana og hún minnti okkur á að einu sinni hefði stelpa á leikskólanum opnað munninn, fullan af hálftuggnum mat "og ég gubbaði á gólfið í leikskólanum og ég var að borða lasagna og það var rauð paprika í gubbinu. Ég hata papriku."
Eftir drykklanga stund sagði hún svo: "Ég veit um eitt sem er áreiðanlega verst í heimi."
-Nú, hvað er það, spurðum við og áttum von á einhverju sakleysislegu, á okkar mælikvarða að minnsta kosti.
"Verst í heimi er ef maður þarf að skipta um mömmur," sagði þá krúttið.
Henni var nú ekki hótað meiru þann daginn.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sælar allar hoppandi frænkur í Logalandi.Þetta eru nú meiri krúttin .Passið uppá að Margrét fari ekki að hoppa of mikið á trampólíninu með öll jarðarberin í maganum ! Bestu solarkveðjur til ykkar ,Ásta frænka
ÁSthildur (IP-tala skráð) 29.6.2007 kl. 00:17
Ég tek undir það með síðasta ræðumanni að þetta eru meiri krúttin sem þú átt. Ég er nú bara ókunnug manneskja en er farin að kíkja inn á síðuna þína á hverjum degi og lesa þessar skemmtilegu sögur af þeim systrum.
Bestu þakkir fyrir skemmtilegt blogg,
Björg K. Sigurðardóttir, 29.6.2007 kl. 00:46
Margrét hikar sko ekkert við að hoppa á trampólíni með fullan maga! Verst er þegar hún krefst þess að við hoppum með. Þótt kvöldmaturinn hafi verið í léttari kantinum, kjúklingaspjót og salat, þá var ég nú ekkert sérstaklega spennt fyrir að strokka hann í maganum með hoppi.
Takk fyrir góðar kveðjur, mér finnst svo gaman að sjá þegar ættingjar og vinir lesa og mér finnst líka afskaplega gaman að ókunnugt fólk úti í bæ kíki hérna við
Í gær hringdi í mig maður, sem hefur lesið síðuna af og til og vildi endilega senda þeim systrum bækur í kveðjuskyni. Mikið fannst mér það notalegt samtal.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 29.6.2007 kl. 10:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.