Ítalíudraumar

Systur eru spenntar fyrir komandi Ítalíuferð. Á leiðinni í leikskólann í morgun spurði ég þær til hvers þær hlökkuðu mest.

Margrét var með það á hreinu: "Ég hlakka mest til að hoppa út í djúpu laugina með kúta og fara á bólakaf."

Til allrar hamingju lítur hún svo á að sundlaugar, sem ná mæðrum hennar í bringu, séu "djúpar" laugar.

Ég vissi að systur hennar væri ekkert um þetta svar, enda fer hún afskaplega varlega í sundlaugum og er alltaf jafn undrandi á að einhver geti hugsað sér að setja höfuðið í kaf. Hún er öðruvísi þenkjandi: "Mér finnst gaman þegar við förum í leigubíl og svo löbbum við um og svo förum við á veitingastað."

Við förum líklega létt með að láta draumana rætast.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það ætti að vera hægt að lifa þokkalegu lífi með þessar væntingar.  En unglingsárin, guðminngóður, unglingsárin.  Farðu að safna kröftum fyrir ferðalög framtíðarinnar.  You´re gonna need it.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.6.2007 kl. 12:48

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Það er algjörlega, gjörsamlega bannað á þessari síðu að benda mæðrum á að litlu, krúttlegu, ljúfu, blíðu sex ára stelpurnar þeirra verði einn daginn unglingar. BANNAÐ, segi ég!!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 29.6.2007 kl. 13:23

3 identicon

Sæl Ragnhildur

Ég er alveg sammála þér Dóttir okkar sem 31 árs er alltaf á skemmtilega aldrinum það er frá fyrsta brosinu og hjalinu til dagsins í dag

kv

J Friðrik Kárason (JFK)  

J Friðrik Kárason (IP-tala skráð) 29.6.2007 kl. 14:19

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Eru þær ekki skemmtilega ólíkar, önnur er svona gormur eins og ég kalla það,
 hin er meiri hefðardama, veitingastað er þetta ekki yndislegt.
Ég á nefnilega eina þriggja ára síðan í mars, hún kemur til okkar ansi oft svo segir hún kannski,
amma eigum við að fá okkur kaffi og kex að dýfa, já gerum það þá kallar hún í afa sinn og segir afi viltu hella á kaffi, svo sest hún í stól inni í stofu krossleggur litlu fótanna sína og ég á að setjast í hinn stólinn svo bíðum við eftir kaffinu, á meðan segir hún mér sögur af leikskólanum.
Börn eru og verða alltaf það skemmtilegasta sem við  ölum önn fyrir þar til þau fljúga úr hreiðrinu. Það er rétt hjá Friðrik allur aldur hefur sinn sjarma ef við tökum við honum eins og fullorðið fólk, við fullorðið fólk.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.6.2007 kl. 21:50

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Jú, þær systur eru mjög ólíkar að mörgu leyti. Það er svo skemmtilegt að fylgjast með því hvernig tvær litlar manneskjur, sem komu í heiminn með mínútu millibili og hafa alist upp á sama heimili, hafa oft svo ólík sjónarmið.

Friðrik, þúsund þakkir fyrir sendinguna sem systur fengu í gær

Ragnhildur Sverrisdóttir, 30.6.2007 kl. 08:59

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Unglingsárin 13-15 ca. einkennast af algerri serotoninþurrð.  Allt er ömurlegt og hallærisislegt.  Foreldrarnir heimskir og lame.  Skólinn ömurlegur. Allt leiðinlegt og tilgan gslaust.  Það er yndislega sjarmerandi tími líka.  Þau eru eins og þau séu alltaf ný-vöknuð og langi í rúmið aftur. Bera sig eins og þau séu hengd upp á snaga.  Hálflukt og áhugalaus augu og opinn munnur.  Maður er ávallt annarstaðar en  maður vildi vera og vantar alltaf eitthvað meira. Ávallt ófullnægð. Allt er Ööööömurlegt.  Svo bráir þetta af og upp spretta sjálfstæðar og heilsteyptar manneskjur með ástríður og áhugamál, sjálfstæðar skoðanir og markmið.  Þetta er undursamlegt að skynja.

Þarna mótast Egóið hraðast. Hver maður er að eigin mati eða hvað maður vill verða. Hverju maður vill líkjast.  Því eru fyrirmyndir mikilvægar á þessum tíma. Egóið er samt varasamt element.  Fátt kemur manni´meira í klípu en það.

Þegar maður er 6 ára, er það líðandi stund sem gildir og upplifun hvers augnabliks.  Margt er þar sem við ættum að reyna að halda í.  Augnablikin eru það eina raunverulega.

Jón Steinar Ragnarsson, 30.6.2007 kl. 09:51

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Jón Steinar þetta er afar vel mælt hjá þér, en ég hef aðra sögu að segja.
Ég er með tvær 16.ára og þær hafa bara aldrei farið á þetta stig sem þú ert að lýsa,
en þetta er að sjálfsögðu einstakling  bundið. þær eru virkar í öllu samstarfi í skólanum nema  þær taka ekki þátt í skemmtanalífi skólans þeim finnst það bara leiðinlegt. Tónlistin, ljósaflóðið og bara allt.
 En auðvitað hafa þær, þessir matgæðingar mínir afar gaman að fara út að borða, bíó og söfn, bæði með okkur og vinkonum sínum helst á Ísafirði eða þegar vinkonurnar koma til Húsavíkur. Þær geta talað um alt, við alla aldurshópa, Fróðar með afbrigðum og minnugar, eins og t.d. fæ ég að heyra það með jöfnu millibili, þegar amma var að hjálpa þeim með starfræðina og amma gerði bara smávillu, þær voru í þriðja bekk, manni getur nú orðið á. Já sex ára, það var nú ekki bara líðandi stund hjá þeim vildu fræðast um allt.
Þegar þær höfðu aldur til að fara einar niður í fjöru og á uppfyllingarnar á Ísafirði það var þeirra rannsóknar-heimur og guð hvað maður mátti þola í pöddu ófögnuði sumar eftir sumar.
Nei ég mátti nú til með að monta mig aðeins því þær voru svo lánsamar þessar dömur mínar að amma gat verið með þeim frá fæðingu svo ég á svolítinn heiður af því að hafa alið þær upp.
                                     Takk fyrir umburðalyndið.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.6.2007 kl. 15:13

8 identicon

Sælar allar

Min var anægan vona að þær hafi gaman af

kv

JFK

J Friðrik karason (IP-tala skráð) 30.6.2007 kl. 15:45

9 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Mér finnst alltaf svo sjarmerandi við unglingsárin hvernig þau standa með annan fótinn í heimi fullorðinna og hinn í heimi barnanna. Ég hef margoft rætt við klára og vel upplýsta unglinga, sem spjalla eins og harðfullorðnir um alla hluti, en allt í einu kemur athugasemd eins og þau séu miklu yngri og skýtur allt hitt í kaf. Yndisleg dilemma. Mér fannst ég alltaf ráða vel við aldur minn á hverjum tíma en þegar ég horfi um öxl...Drottinn minn!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 30.6.2007 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband