30.6.2007 | 16:45
Svona er lífið
Bjarki Mögguvinur gisti í nótt. Hann er að vísu vinur þeirra systra beggja og félagi á Rauðudeild, en hann hefur lengi verið sérstakur "vinur" Möggu -og verðandi tengdasonur okkar Kötu ef krílin standa við stóru orðin.
Krakkarnir þrír hoppuðu sleitulaust á trampólíni, busluðu í pottinum, léku í kofanum, fóru í vatnsbyssuslag, borðuðu grillaðar pylsur og nutu lífsins. Margrét og Bjarki eru afar samtaka í sínum leik, klifruðu t.d. bæði upp á kant á heita pottinum og stukku svo út í hann miðjan með tilheyrandi gusugangi. Og voru bæði í hláturskasti í vatnsbyssuslagnum. Þau stilltu sig, en þó með miklum herkjum, á meðan Elísabet settist í heita pottinn.
Ég hef aldrei vitað börn sofna eins fljótt og þessi þrjú. Bjarki hafði varla stunið upp "góða nótt" en hann var steinsofnaður í rúminu hennar Elísabetar, sem vék úr því og færði sig yfir í gestarúm. Þær systur sofnuðu 10 og 15 sekúndum síðar.
Í morgun tókst okkur að halda þeim innan dyra til kl. 9, en þá héldu þeim engin bönd og þau stukku á náttfötum út á trampólín. Þá var ég búin að sannfæra sjálfa mig um að nágrannarnir væru hvort sem er ekkert sofandi á svona dýrðardegi.
Undir hádegi, þegar vinirnir voru enn á ný búnir með rúntinn trampólín, heitur pottur, kofi, heyrðist barnsgrátur af gangstígnum fyrir neðan garð. Þau hlupu öll þrjú á staðinn og þar var lítill gutti sem hafði meitt sig. Mamma hans var með í för, svo Bjarki, Elísabet og Margrét sáu ekki ástæðu til annars en að horfa þögul á. Loks sagði Bjarki: "Svona er lífið!", þær systur samsinntu og þau sneru öll þrjú heim í garð aftur.
Síðdegis fórum við mægður í hjólatúr niður í Fossvogsdal. Við stoppuðum við göngubrú, stelpurnar fóru úr skóm og sokkum og óðu út í litla tjörn. Þær ætluðu aldrei að fást heim aftur. Á svona stundum áttar maður sig á hvað það þarf lítið til að dagar 6 ára kríla séu fullkomnir.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er greinilega gaman saman. Þetta er tími sem börnin muna alltaf eftir, þetta er frábært dæmi um svokallaðan gæða tíma með börnunum, því eins og þú bendir réttilega á þá er það samveran sem skiptir máli, en ekki rándýrar utnalndsferðir. Mæli með því að fólk eyði meir tíma með börnum og minni í utanlandsferðir, líkamsræktastöðvar, ljósabekkjum..... Það er nefninlega heilmikil hreyfing í því að vera með börnunum úti og svo verður maður útitekinn og fínn.
Guðmundur Örn Jónsson, 1.7.2007 kl. 12:17
Ég veit nú ekkert yndislegra en að vakna á morgnana við fuglasöng og barnaleik,
það eru börn á öllum aldri í kringum okkur og fullt af trampólínum þeir sem ekki þola það geta sett á sig eyrnaskjól.
Það hefur aldeilis verið gaman hjá litlu englunum í gær.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.7.2007 kl. 15:36
Svona dagar gleymast heldur trauðla og vaka með manni fram í ellina.
Jón Steinar Ragnarsson, 2.7.2007 kl. 00:14
Það er svo yndislegt þega þú skrifar um börnin. Yljar manni vel og lengi.Takk.
Edda Agnarsdóttir, 2.7.2007 kl. 00:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.