Ærlegar mæður

Þá er viku ferð til Ítalíu á enda. Veðrið lék við okkur, oftast um 26 stiga hiti, engin molla og leiðindi. Systur léku við hvern sinn fingur. Við vorum á Bibione, í fínni íbúð, stutt á strönd. Á þriðja degi leigðum við  bíl og ókum til Feneyja, vorum lengi á leiðinni suðureftir, en brunuðum hraðbraut til baka. Feneyjar voru eitt ævintýri.

Þegar systur voru loks komnar í bólið í kvöld lýsti Margrét sérstakri ánægju með mæður sínar. "Þið eruð yndislegar, skemmtilegar, sniðugar og ærlegar. Hvað þýðir annars ærlegar?"

Ég gat ekki svarað þessu strax, enda ber Margrét "ærlegar" fram sem "ællegar". Þá vísaði hún í Hans klaufa: "Sko, kóngurinn sagði að það sem skipti prinsessuna mestu væri að Hans klaufi væri ærlegur."

Við erum sem sagt ærlegar. Ekki amaleg einkunn það.

Meira af Ítalíuferð síðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband