9.7.2007 | 17:15
"En þú ert ekki með ljót augu"
Já, Ítalíuferðin með sól, sundlaug, strönd og þúsund ísum og pizzum var frábær. Þó stendur óveðrið mikla upp úr í minningu systra.
Eitt kvöldið sátum við á veitingastað og þá byrjuðu ósköpin. Þrumurnar byrjuðu að drynja í fjarska og á skammri stundu var gjörningaveðrið beint fyrir ofan okkur. Bláar eldingar lýstu upp himininn og þrumurnar voru svo háværar að mannsraddir höfðu ekkert í þær. Nema raddir systranna. Þær hrópuðu upp af eintómri hamingju vegna þessa sjónarspils og þótt drjúg stund liði þar til það versta var afstaðið tóku þær við hverri eldingu með sama ákafa og upphrópunum. Útlent fólk á næstu borðum var dálítið hissa á þessu, enda börnin þeirra vön alvöru þrumuveðri. Þegar lætin voru sem mest í þeim systrum sögðum við þessu ágæta fólki að svona fjör væri ekki að finna á Íslandi og þess vegna væru dæturnar gjörsamlega að spila út. Þær voru jafn ákafar og á gamlárskvöld. "Vá, sástu þessa Margrét?!" "Elísabet, þessi var ennþá stærri!!"
Eins og alltaf þegar þær systur verða verulega uppnumdar og upplifa eitthvað stórkostlegt fáum við Kata að njóta þess. Þrumuveðrið jók enn á ást þeirra til okkar, svo mjög að um kvöldið, þegar Margrét var að sofna, lýsti hún því yfir við Kötu að hún elskaði hana svo mikið að ef hún ætti að velja um að fara í bíó eða eiga mömmu sína, þá myndi hún sko eiga mömmu sína.
Kata sagðist bera sömu tilfinningar til hennar.
Margrét: "En ef þú ættir að velja að horfa á fréttir eða eiga mig?"
Kata: "Eiga þig"
Margrét: "Þótt það væru mikilvægar fréttir?"
Kata hélt nú það, engin frétt gæti verið svo mikilvæg að hún tæki hana fram yfir dótturina.
Margrét: "En að vera með falleg augu eða eiga mig?"
Kata: "Eiga þig."
Margrét: "'Ókei. En þú ert ekki með ljót augu. Góða nótt."
Í ferðinni lærðu þær systur á myndavélina okkar, sem mér fannst töluvert afrek hjá þeim, en Kötu þótti afskaplega eðlilegt af því að þessi fj...... vél er víst svo óskaplega auðveld í notkun. Eitt kvöldið fengu þær frítt spil með myndavélina, því við Kata vorum enn að plægja okkur í gegnum matseðil ágæts veitingastaðar. Elísabet skellti sér í fyrirsætustörfin og okkur varð eiginlega um og ó þegar við sáum allar "pósurnar". Margrét tók myndir af miklum móð og var svo listræn að hún hallaði myndavélinni viljandi fram og til baka. Mér fannst nú hreinn óþarfi hjá henni að snúa vélinni alveg á hvolf, eins og hún gerði nokkrum sinnum, en hún var sjálf fljót að átta sig á að þær myndir urðu ekkert óvenjulegar.
Þær systur skiptu um hlutverk, Elísabet myndaði og Margrét stillti sér upp, en fjórum myndum síðar gáfu þær það upp á bátinn. Margréti fannst bara alls ekkert gaman að stilla sér upp, en Elísabet elskaði það. Og Elísabetu fannst ekkert spennandi að taka myndir, en Margrét fyllti vélina af ágætum myndum af systur.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sko barnið elskar móður sína ofurheitt, fyrst hún er til í að fórna bíóferð fyrir kærleikinn. Takk fyrir yndislegan pistil og velkomnar heim.
Jenný Anna Baldursdóttir, 9.7.2007 kl. 19:21
Meinti kærleikann, er enn að jafna mig eftir bilun á blogginu í dag
Jenný Anna Baldursdóttir, 9.7.2007 kl. 19:22
Takk, takk
Ég vona að þú náir fljótt fyrri bloggheilsu, þessi bilun tók svo sannarlega á taugarnar!
Ragnhildur Sverrisdóttir, 9.7.2007 kl. 19:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.