9.7.2007 | 20:07
Hundrað prósent
Margrét sá ástæðu til að fara fram á að mæður hennar bættu sig aðeins. Hún hafði langan formála að þessu, sagði að við værum frábærar og yndislegar og skemmtilegar. "Sko, þið eruð hundrað prósent, en ég mundi alveg vilja að þið væruð 100 prósent í viðbót."
Ég vona að stærðfræðikennslan í Fossvogsskóla standi undir nafni.
Elísabet hafði þá athugasemd eina, að við værum stundum dálítið gleymnar, til dæmis gleymdum við stundum að hringja í foreldra vina þeirra til að spyrja hvort þeir mættu koma heim með þeim eftir elikskóla og stundum gleymdum við að fara á fótboltaæfingu.
Vissulega "gleymum" við sumu og gleymum öðru. Það kemur fyrir besta fólk. Þótt það sé aðeins hundrað prósent.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ekki nema von að móðir þessara stúlkna hafi áhyggjur af stærðfræðikennslu þeirra. Ef ég man rétt (og mun sennilega aldrei gleyma) svaraði þessi sama móðir 50% reikningsspurningu á bókfærsluprófi hér fyrir nokkrum árum með prentstöfum þar sem tölurnar virtust vefjast fyrir henni. Það reyndar vefst enn þann dag í dag fyrir mér, hvernig í ósköpunum hún náði prófinu.
Skemmtilegar sögur af greinilega skemmtilegum tvíburum :-) Hvar vinna annars "uppgjafa" blaðamenn með BA próf í lögum nú til dags?
Brynjar Már (fyrrum Hr-ingur) (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 20:34
Þú ætlar víst seint að fyrirgefa mér að hafa náð þessu blessaða bókfærsluprófi, Brynjar
Enda stóð það reyndar heldur tæpt.
En það er auðvitað alveg sérstakur hæfileiki að geta útskýrt bókhaldskúnstir með orðum einum. Reyndar gerði ég nokkrar tilraunir til að rita tölustafi, sem mér finnst fá allt of mikla athygli í lífinu almennt, en þar sem ég strandaði alltaf varð ég að grípa til orða. Líklega handicap úr áratuga blaðamannsdjobbi.
Og uppgjafa blaðamenn með BA próf í lögum vinna eins lítið og þeir mögulega geta, thank you very much. Er reyndar eitthvað að fást við skriftir, en bara á mínum forsendum og helst í vondu veðri. Ég stóla á að sólin skíni þegar ég fer að siga litla hundkvikindinu hennar systur minnar á þig skokkandi fyrir vestan í júlílok! Ég vona alla vega innilega að þú verðir á svæðinu, það hlýtur að vera óborganlegt að sjá þig fara skokkhringinn á mettíma, á flótta undan chihuahua kríli
Hvað gera uppgjafa gjaldkerar hjá Glitni með BA próf í lögum nú til dags? Sitja kúrsa hjá erkifjandanum á Melunum?
Ragnhildur Sverrisdóttir, 9.7.2007 kl. 21:28
Mikið er ég glöð að það séu fleiri mæður sem gleyma svona "mikilvægum" verkum. Ég er þá ekki ein. En mikið er Margrét flink að gagnrýna, byrjar með hrósi og síðan kemur skellurinn. Held að ég verði að segja að það séu ekki öll börn með svona góða tækni. Hún á eftir að verða góð.
Les alltaf bloggið þitt reglulega því þú ert skemmtilegur penni sem getur látið hina hversdagslegu hluti verða mjög skemmtilega ásamt því að dætur þínar eru algerir gullmolar og það er ekki annað hægt en að skemmta sér við lestur uppátækja þeirra. Takk fyrir mig.
Fjóla Æ., 10.7.2007 kl. 13:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.