Fótboltaskóli

Systur eru í knattspyrnuskóla Vals á morgnana, frá 9-12. Fyrsti dagurinn var í gær og þær voru glaðar og kátar á leiðinni, enda alvanar að æfa fótbolta með Val. Þegar kom að því að skilja þær eftir, í stórum hópi krakka þar sem þær þekktu fáa, missti Margrét kjarkinn um stund, en hljóp svo inn á völlinn og ég fór í burtu.

Klukkan 12:01 var ég komin aftur til að sækja þær og Margrét þá orðin örvæntingarfull mjög. Hún tók þó gleði sína á ný en í gærkvöldi, þegar hún var orðin mjög þreytt, sór hún þess dýran eið að fara aldrei aftur. Hún var búin að gleyma því í morgun.

Elísabet, sem fór grátandi á fyrstu fótboltaæfinguna sína, er sallaróleg yfir þessu öllu saman. Á leiðinni á Hlíðarenda í morgun lagði hún systur sinni lífsreglurnar. "Þú skalt bara sitja hjá mér og hinum stelpunum þegar við borðum nestið," sagði hún og við nánari eftirgrennslan kom í ljós að það hafði Margrét ekki gert í gær, heldur setið inni í einhverjum gámi og maulað nestið sitt. "Við tölum svo mikið að við gleymum að borða nestið okkar," bætti Elísabet hin margorða við og fannst þetta greinilega toppurinn á tilverunni.

Eftir æfingu í dag kom í ljós að Margrét hafði ekki látið sér segjast, heldur borðaði nestið sitt í gámnum á meðan Elísabet sat úti hjá hinum stelpunum. Það var þó huggun harmi gegn að Bjarki besti vinur kom í fótboltaskólann í morgun.  "En ég sagði Margréti að koma og vera hjá okkur" sagði Elísabet, til að fyrirbyggja allan misskilning um að hún hefði ekki reynst systur sinni vel á ögurstundu.

Þegar ég gekk á Margréti kom í ljós að hún þorði ekki öðru en að vera kyrr í gámnum, "af því að það var enginn kennari". Þjálfarinn hafði sem sagt brugðið sér í burtu í kaffihlénu og Margréti vildi ekki víkja í burtu í því skelfilega öryggisleysi.

Við gerðum samning. Hún ætlar að sitja með hinum stelpunum á morgun.

Þessi fótboltaskóli er annars tær snilld. Ungir Valsarar kenna krílunum tökin á tækninni og þegar ég kom að sækja þær (kl. 11.30 samkvæmt samkomulagi við Margréti) voru tveir strákar um tvítugt að spila með krílahópnum. Það var greinilega toppurinn á tilverunni.

Eftir fótboltaskólann kom Edda frænka þeirra og sótti þær og fór með þær í Húsdýragarðinn. Þar hlýtur að vera eintóm sæla, dýr, leiktæki, gott veður og Edda uppáhald.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Elsku litla dúllan hún Margrét. En hvað er þjálfarinn að bregða sér í burtu?  Það er ótækt (og ég er ekki að grínast). 

Vonandi gerir hún sig jafn vel og systir hennar í boltanum.

Takk fyrir mig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.7.2007 kl. 21:07

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Já, þetta hljómaði ekki vel, þetta þjálfarabrotthvarf, en staðreyndin er sú að þarna var allt morandi í leiðbeinendum og þjálfurum. Þessi eini, sem litli reglugerðarpúkinn hún Margrét ákvað að bíða eftir, fór hins vegar frá. Blessuð börnin voru því ekki í neinu reiðileysi, bara öryggisleysi, alla vega þau sem eru svona innstillt 

Ragnhildur Sverrisdóttir, 10.7.2007 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband