Fær ekki boltann

Þegar ég kom að sækja þær systur í fótboltann var hálftími eftir. Hópurinn var að æfa vítaskot, en svo var ákveðið að skipta í lið og keppa. Elísabet neitaði að vera með og ég varð mjög undrandi, enda hefur henni alltaf þótt skemmtilegast að berjast um boltann í leik.

"Það þýðir ekki neitt, strákarnir senda aldrei boltann til mín," sagði hún. Svo útskýrði hún að hún hefðu margoft kallað til þeirra að hún væri frí og þeir ættu að gefa á hana, "en það er alveg sama þótt ég sé alein og enginn nálægt og þeir geti alveg sent boltann til mín, þeir senda hann alltaf til annars stráks, þótt hann sé ekki á jafn góðum stað."

Þessi fjári byrjar ansi snemma, finnst mér, að senda boltann alltaf á karlmann þótt kona sé betur í stakk búin til að leysa verkefnið.

Strákar eru í meirihluta í fótboltaskólanum og ég hef dálitlar áhyggjur af að stelpurnar mínar missi móðinn. Þegar þær byrjuðu að æfa með Val í 8. flokki voru strákar jafn margir stelpunum og þær héldu sig alltaf til hlés. Strákarnir höfðu miklu meira sjálfstraust og flestir meiri reynslu af fótbolta. Stelpurnar ákváðu strax að þær hefðu ekkert í þá að segja. Um leið og við fluttum þær í 7. flokk, þar sem eru bara stelpur, fóru þær að blómstra. Núna virðist allt vera að sækja í sama horf.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Unnar Geirdal

Ljótt að hún fékk ekki boltann, en það er eiginlega ekki hægt að blanda kynjamisrétti inn í knattspark litla krakka, eða er það hægt ?

 En allavega, þegar ég var yngri í fótboltanum lenti maður oft á liðum sem voru með stelpu í byrjunarliði. Og þá er ég að tala um þegar í ellefu manna boltann var komið (4 flokk og ofar minnir mig). 

Hvort hún fékk boltann oft man ég ekki.. ;D 

Unnar Geirdal, 11.7.2007 kl. 23:06

2 identicon

Satt er það - snemma byrjar það.  Sem mamma tvegggja næstum 6 ára stráka óar mig við karlrembunni sem ég er farin að hallast að því að sé meðfædd  -  Mínir guttar hafa æft sund í vetur í blönduðum hóp og þeir voru nokkrir félagarnir þar sem áttu erfitt með að kyngja því að það væri stelpa í hópnum sem væri miklu betri en þeir !

Birgitta (IP-tala skráð) 11.7.2007 kl. 23:40

3 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

já ég held að þetta sé stundum bara meðfætt í þessa gutta okkar

Sædís Ósk Harðardóttir, 12.7.2007 kl. 00:05

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

KLUKK!

Halldór Egill Guðnason, 12.7.2007 kl. 03:05

5 Smámynd: Johnny Bravo

Maður veit ekki, hef allavega sjálfur alltaf notað alla þá leikmenn sem með mér eru í lið sem best.  En hefuru hugleitt hvort 2 eða fleyrri strákar í liðinu voru vinir? þeir kjósa helst hvorn annan og spila sína á milli þeir bestu. Einnig getur verið að stulkan þín hafi verið rangt staðsett eða bara léleg og þá skiftir kannski ekki máli hvort hun er strákur eða stelpa ekkert verið að gefa á hana. Finnst allavega hæpið að kalla 8ára gutta karlmenn og gefa í skyn að þetta sé svona í fullorðnum heimi.

Johnny Bravo, 12.7.2007 kl. 09:00

6 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég ætlaði nú alls ekki að ráðast að blessuðum guttunum í þessum skrifum mínum. Sum viðhorf virðast vissulega innbyggð í þau, t.d. fullyrtu tveir þeirra við stelpurnar í dag að stelpur gætu ekki skorað mörk. Þetta á ekki við alla, enda mennirnir jafn misjafnir og þeir eru margir, t.d. held ég að vart finnist betra "klapplið" en Bjarki, sem hrópar alltaf og kallar hvatningarorð, sérstaklega til Margrétar  En það er mikilvægt fyrir foreldra að ræða þetta við krakkana sína, hvort sem eru stelpur eða strákar. Stelpurnar mínar eru t.d. með ansi margar, fyrirfram gefnar hugmyndir um stráka, sem ég leitast við að laga.

Það er líka fjarri mér að halda því fram að þessi staða sé "karlmönnum" í 7.-8. flokki að kenna. Það fer satt best að segja ógurlega í taugarnar á mér að sjá hvað margt virðist innbyggt í stelpurnar, t.d. draga þær sig allt of fljótt í hlé ef eitthvað bjátar á. Þegar ég kom að sækja þær á æfingu í dag sá ég að báðar voru á fullu í leik. Þá voru engar aðrar stelpur að spila með. Þegar þær voru fleiri, eins og í gær, þá þurfti ekki nema ein þeirra að draga sig út og neita að spila til að hinar settust með henni í einhvern saumaklúbb uppgjafar. Strákarnir "kóa" ekki á þann hátt.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 12.7.2007 kl. 13:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband