14.7.2007 | 21:34
Vasapeningar
Yfir kvöldmatnum í góða veðrinu úti á palli fór Margrét að ræða hvort ekki væri nú tilvalið að þær systur fengju borgað fyrir að vinna hin og þessi verk. "Við erum búnar að vinna húsverk OG garðverk í dag!" sagði hún og það var vissulega hárrétt.
Svo fór hún að telja upp fyrir hvað mætti borga þeim systrum og hversu há upphæðin ætti að vera. Henni fannst fínt að fá krónu á dag og alla summu vikunnar borgaða út á laugardögum. Svo tilkynnti hún að þær systur gætu unnið húsverk og garðverk þangað til þær færu í menntaskóla.
Elísabet tók andköf af skelfingu: "Margrét, ertu brjáluð?! Maður þarf að vera tuttugu ára, eða nítján ára eða sautján til að vera í menntaskóla!! Ég ætla EKKI að vinna alveg þangað til ég verð gömul!!"
Margrét tók þessari gagnrýni með ró og sagði að þær þyrftu kannski ekki að vinna mikið á hverjum degi. Ég benti á, að þar sem þetta væri húsið okkar allra og garðurinn okkar allra væri ekki nema eðlilegt að þær hjálpuðu til án þess að fá sérstaklega borgað fyrir það. Kata bætti við að kannski væri kominn tími á einhverja vasapeninga í haust, þegar skólinn byrjaði. Þá myndu þær alltaf klæða sig alveg sjálfar á morgnana og búa um rúmin sín.
Þetta fannst Elísabetu alveg nóg. "Ókei, ég skal alveg gera eitthvað lítið, en ég nenni sko ekki að vinna á hverjum degi eitthvað mikið."
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
...einmitt! Ég nenni sko heldur ekkert að vinna á hverjum degi eitthvað mikið! eða þannig...
Urdur (IP-tala skráð) 16.7.2007 kl. 16:14
Nei, það er alveg nóg að gera eitthvað lítið ;)
Ragnhildur Sverrisdóttir, 16.7.2007 kl. 21:40
fjúkk maður.... er náttúrulega líka orðin þetta gömul, tuttugu og nítján og allt! 'Eg ætla bara að vona lengst allra orða að Margrét leggi hvorki verkalýðsforystu eða samningaþóf fyrir sig, ekki á hverjum degi sem maður sér samið svona rækilega af sér...
Urður (IP-tala skráð) 17.7.2007 kl. 08:20
Margrét fær vonandi einhverja peningavitglóru þegar fram líða stundir. Núna er hún miklu hamingjusamari að fá 3 krónur en 100, enda þrír peningar alveg þrisvar sinnum meira en einn.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 17.7.2007 kl. 10:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.