16.7.2007 | 11:56
Í fasta svefni
Undir miðnætti í gær vaknaði Elísabet. Hún rumskar gjarnan um það leyti og sækir stíft að koma í stóra rúmið. Oft sofnar hún þó aftur í sínu rúmi, en þegar hún vaknar um 3-4 leytið á nóttunni eru engar varnir, þá skríður hún upp í án þess að mömmur nenni að fetta fingur út í það.
Í gærkvöldi lýsti hún því yfir, svefndrukkin, að hún hefði bara alls ekki sofnað. "Það var eins og mig væri að dreyma, en samt var ég alls ekkert sofandi, bara með lokuð augun," sagði hún, enda viðurkennir hún aldrei nokkurn tímann að sofa. "En það var eins og ég væri í fasta svefni," bætti hún við (mér finnst svo frábært þegar hún tekur svona til orða.)
Hún reyndi að sannfæra okkur um að þótt hún hefði alls ekkert sofið, þá hefði hana eiginlega dreymt illa. Þegar henni sýndist það ekki ætla að duga fór hún mörgum orðum um hvað hana kitlaði mikið í hálsinn og fór að hósta og ræskja sig með slíkum tilþrifum að systir hennar losaði svefn hinum megin í herberginu. Þegar hún bætti því við að hana kitlaði líka ógurlega í nefið og bjó sig undir að framleiða einhver óhljóð til að sanna mál sitt játuðu mæður sig sigraðar og hún fékk að skríða upp í stóra rúm. Þar hurfu allir vondir draumar, nefkitl og hálskitl. Og innan tveggja mínútna var eins og hún svæfi, en við vitum auðvitað að hún sefur aldrei. Það er bara eins og hún sé í fasta svefni.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 786282
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvar skráir maður sig í sjálfboðavinnu vegna fyrirhugaðs forsetaframboðs þíns?
Leifur (IP-tala skráð) 16.7.2007 kl. 17:35
Þetta forsestaframboð er auðvita bara flott Fínt að dunda sér við það
hvernig er það annars geta Valsarar orðið sjálfboðaliðar hjá þér?
kossar og knús til Elísarbetu og Margrétar
Linda Ósk
Linda Ósk Sig (IP-tala skráð) 16.7.2007 kl. 19:14
Allir sjálfboðaliðar velkomnir! Kosningaskrifstofan er reyndar ekki komin í gagnið, enda hefur þetta aðeins komið einu sinni til tals og þá var það ég sjálf sem stakk upp á því. Ég reyni ekki einu sinni að ljúga því upp að ég hafi fengið fjölda áskorana
Ragnhildur Sverrisdóttir, 16.7.2007 kl. 21:42
ó
ÚPS
var að sjá bloggið hennar Önnu Pálu.
Djókathugasemdin mín orðin að stórum brandara.
hehe
Ragnhildur Sverrisdóttir, 16.7.2007 kl. 21:52
Enginnbrandari mín kær, þú hefur nú þegar fengið fjölda áskorana. 'Eg býð mig fram í að sleikja frímerki og ganga í hús. Hlakka svo náttúrulega bara til að vera boðið í kvöldmat á Bessastöðum!
Urdur (IP-tala skráð) 17.7.2007 kl. 08:10
Gourmet á Bessastöðum hljómar alls ekki illa!
Nú þarf bara að finna góðan ímyndarráðgjafa og klára dæmið.. hvern notaði Ólafur? Hann virkar alla vega vel..
Leifur (IP-tala skráð) 17.7.2007 kl. 10:31
Það væri auðvitað hægt að halda alveg mögnuð partý, það verður að viðurkennast. En ætli þau væru nógu skemmtileg til að bæta upp móttökur erlendra þjóðhöfðingja/skátahópa/listamanna/orðuhafa og opinberar heimsóknir um allar jarðir? Sumt áreiðanlega mikið stuð. Annað verra.
Ég fór einu sinni á vegum Mogga til Noregs, þegar ORG var þar í opinberri heimsókn. Forsetinn vaknaði einn daginn kl. hálf sjö til að fara á gönguskíði á Holmenkollen. Ekki vorum við blaðamennirnir sérstaklega lukkulegir þá, enda löng nótt á blaðamannaklúbbnum í Osló að baki.
Kannski myndi ég rífa mig upp fyrir allar aldir, ef ég væri forseti, bara til að sjá svipinn á blaðamönnunum, sem yrðu svo að bíta á jaxlinn og senda fréttir heim á meðan ég sæti veislur
Ragnhildur Sverrisdóttir, 17.7.2007 kl. 10:43
Hún er farin að volgna.....
'A þessum síðustu og bestu tímum er ekkert sjálfsagðara en að boða rækilegan niðurskurð á skyldustörfu Forsetu 'Islands. Aðrar breytingar gætu t.d. verið að úthluta orðum til vina og vandamanna (þá er orðuveislunni bjargað.)... sjá til þess að erlendir þjóðhöfðingjar hitti 'venjulega 'Islendinga' (ég býð mig fram í það, tala líka útlensku).... og svo náttúrulega að heiðra fyrrum skáta... ahemm. Morgunskíðagöngur, já.... líklega best að láta ungum og upprennandi blaðasnápum þær eftir....
heyrðu, þetta er allt klappað og klárt!
Urður (IP-tala skráð) 17.7.2007 kl. 11:18
Flott. Þú átt eftir að halda svo stórskemmtileg partý.
Kata getur fengið lánaðann hlébarðapelsinn hans Bjarna míns.
Anna Pála Sverrisdóttir, 17.7.2007 kl. 11:39
Já, Urður, það væri auðvitað snilld að fækka skyldustörfunum, í hagræðingarskyni, en halda samt góðri risnu! Og mér finnst löngu, löngu tímabært að þú fáir eins og eina orðu og ég þekki fullt af venjulegum Íslendingum í móttökurnar, sem gætu spjallað þar við þig og einstaka útlending. Og einu sinni var ég líka í skátunum...
Kata verður víst að fara að venjast tilhugsuninni um að verða forsetafrú. Og það í hlébarðapelsi! Hingað til hefur mér þótt afskaplega praktískt að vera framkvæmdastjórafrú (hún klúðraði að vísu þeim titli fyrir mér með því að verða aðstoðarmaður, því hver vill vera "aðstoðarmannsfrú"?) Kannski ég verði matvinnungur á Bessastöðum eftir allt saman? Blaðamenn eru nú ekkert allt of iðnir við að draga björg í bú, eins og þú veist mæta vel, svo þetta yrði skemmtileg tilbreyting.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 17.7.2007 kl. 11:55
Þetta með matvinnunginn er nýr og áhugaverður vinkíll. Þetta er kannski ekki svo alvitlaus hugmynd eftir allt saman.
Hanna Kata (IP-tala skráð) 17.7.2007 kl. 12:28
Hana, þá rankaði loksins hagfræðingurinn við sér.... Þetta er frábær hugmynd mínar kæru og nú er bara að bretta upp ermarnar. Við ræðum málið yfir vínglasi von bráðar (er á leiðinni í vísitasíu)
kv frá fyrrum, venjulegum skáta og Íslendingi, aka: frú Urr og sérstök kveðja frá Max, sem stendir magnaðar stuðningskveðjur og segist myndu kjósa Rrrragnh-urði anytime, eins og forsetaframbjóðöndin er kölluð hér.
Urður (IP-tala skráð) 17.7.2007 kl. 13:07
Vá, ég er alla vega með pottþétt sambönd í Póllandi
Ragnhildur Sverrisdóttir, 17.7.2007 kl. 13:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.